Transkona í Bretlandi hlaut dóm fyrir kynferðisbrot eftir að hafa ekki upplýst mann um líffræðilegt kyn sitt

21 árs transkona, Ciara Watkin hefur hlotið sakfellingu fyrir kynferðisbrot í Bretlandi eftir að hafa ekki upplýst karlmann um líffræðilegt kyn sitt áður en Watkin stundaði kynlíf með manninum.

Málið var tekið fyrir í Teesside Crown Court þar sem dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að með því að halda líffræðilegu kyni sínu leyndu hefði Watkin komið í veg fyrir að karlmaðurinn gæti veitt upplýst samþykki fyrir kynlífi.

Auglýsing

Þekktust á samfélagsmiðlum

Watkin og maðurinn, sem einnig er 21 árs, kynntust á Snapchat í júní 2022.

Samkvæmt ákæru sagðist Watkin vera á blæðingum og bannaði honum þess vegna að snerta sig fyrir neðan mitti en veitti honum munnmök.

Watkin og maðurinn hittust svo einu sinni enn og endurtók leikurinn sig  en að þeim fundi loknum klippti Watkin á öll samskipti við manninn.

Síðar upplýsti Watkin manninn í textaskilaboðum um stöðu sína og sagðist vera transkona og hefði karlkyns kynfæri.

„Engin tilraun til að upplýsa manninn“

„Það er ljóst af gögnum málsins að áður en kynferðisleg samskipti hófust gerði Watkin enga tilraun til að upplýsa fórnarlambið um líffræðilegt kyn sitt,“ sagði saksóknarinn.

Í skýrslu lögreglu lýsti maðurinn því yfir að hann hefði aldrei átt í kynferðislegu sambandi við Watkin hefði hann vitað sannleikann.

Málið hefði haft alvarleg áhrif á andlega líðan hans.

Sakfelling og væntanleg refsing

Watkin viðurkenndi að hafa logið en samkvæmt BBC héldu verjendur Watkin héldu því fram fyrir dómi að það hefði átt að vera „algerlega augljóst“ fyrir manninn að ekki væri um líffræðilega konu að ræða.

Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að Watkin fengi sakfellingu fyrir tvö kynferðisbrot og þar af eitt sérlega alvarlegt (assault by penetration).

Dómur verður kveðinn upp 10. október næstkomandi.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing