Fyrrverandi NBA leikmaðurinn Royce White segist ætla að skrá sig í nýliðaval WNBA, kvennadeildar NBA, árið 2027 og kveðst „stundum“ skilgreina sig sem konu þegar kemur að atvinnumennsku í körfubolta.
White greindi frá þessu í viðtali við Fox News á föstudag en yfirlýsing hans virðist vera sett fram sem gagnrýni á reglur um þátttöku trans kvenna í kvennaíþróttum.
„Ég er trans. Ég skilgreini mig stundum sem konu í þeim tilgangi að spila körfubolta og þess vegna ætla ég að skrá mig í nýliðaval WNBA árið 2027,“ sagði White.
Hann bætti við að hann vildi ekki verða fyrir mismunun.
„Ég vil fá sanngjarna meðferð sem íþróttamaður sem skilgreinir sig stundum sem trans konu.“
Mætti með hárkolluna
White hélt síðan áfram að gera grín að málinu á samfélagsmiðlum og birti mynd af sér með hárkollu.
„Hún er komin, gott fólk… Fyrsta hárkollan mín! Á morgun prófa ég hana á vellinum. Þetta er mín umbreyting í konu. Sló ég í gegn?“ skrifaði White.
Hann hélt áfram:
„Ef þið segið ekki „yassss queen“ eruð þið transfóbísk. Ég skil í alvörunni ekki allt þetta hatur, mig langar bara að spila körfubolta með hinum dömunum.“
Undir færsluna skrifaði hann síðan: „Royce White á þing, Minnesota 2026. WNBA #LetHerPlay.“
It came y’all… My 1st wig! Tomorrow I test it on the court. This is my feminine era glow up, did I slay? If y’all don’t „yassss queen“ you’re transphobic. I really don’t understand all the hatred, I just want to play some hoops with my fellow ladies. 💅🏽
Royce White for U.S.… pic.twitter.com/I98XCP6TFh
— Royce White 🇺🇸 (@Highway_30) August 9, 2026
Annar fyrrverandi NBA leikmaðurinn á einum sólarhring
White er ekki sá eini sem hefur gripið til þess að lýsa yfir áhuga á WNBA til að vekja athygli á reglunum.
Daginn áður hafði Enes Kanter Freedom, sem lék um árabil í NBA, tilkynnt að hann hygðist einnig skrá sig í nýliðaval WNBA árið 2027.
Kanter sagði tilganginn ekki vera að gera lítið úr trans fólki heldur að kanna hvort reglum deildarinnar yrði framfylgt með sama hætti gagnvart öllum.
Í kjarasamningi WNBA fyrir árið 2026 kemur fram að aðeins leikmenn sem eru konur séu gjaldgengir til að spila í deildinni. Í ákvæðinu sjálfu er þó ekki nánar skilgreint hvað átt er við með konu.
Í framboði fyrir Repúblikana
White var valinn í fyrstu umferð nýliðavals NBA árið 2012 en lék aðeins þrjá leiki í NBA, alla með Sacramento Kings tímabilið 2013-2014.
Hann hefur á síðustu árum snúið sér að stjórnmálum og er nú frambjóðandi Repúblikanaflokksins til öldungadeildar Bandaríkjaþings í Minnesota.
Umræða um þátttöku trans kvenna í WNBA hefur magnast að undanförnu. Leikmannasamtök WNBA hafa lýst yfir stuðningi við jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu en jafnframt sagt að leikmenn deildarinnar vilji ekki vera notaðir sem pólitísk peð í deilunni.