Ummæli Donalds Trump á ráðstefnu í Davos hafa vakið mikla kátínu á samfélagsmiðlum eftir að hann virtist ítrekað rugla saman Íslandi og Grænlandi.
Klippur úr ræðu hans urðu kveikjan að bylgju svokallaðra memes þar sem landið okkar er dregið inn í alþjóðlega umræðu á kostnað forsetans.
„Markaðurinn féll vegna Íslands“
Í ræðunni vísaði Trump til „Íslands“ í samhengi við öryggis- og efnahagsmál og hélt því meðal annars fram að bandaríski hlutabréfamarkaðurinn hefði tekið dýfu vegna Íslands.
Ummælin vöktu strax furðu þar sem umræðan átti augljóslega að snúast um Grænland og stöðu þess
Atvikið í Davos virðist hafa hitt í mark hjá netverjum og hægt er að sjá nokkur af helstu viðbrögðum hér fyrir neðan.