Donald Trump Bandaríkjaforseti sakar breska forsætisráðherrann Keir Starmer um að „sleikja upp múslima“ og segir Starmer ekki hafa verið jafn liðlegan og hann hafði vonast eftir í tengslum við átökin við Íran.
Í viðtali sagðist Trump aldrei hafa búist við þessari afstöðu frá Bretlandi og bætti við að samband ríkjanna væri ekki lengur eins sterkt og áður. Hann sagði það mjög sorglegt að sjá hvernig samskiptin hefðu breyst og að Bandaríkin ættu nú sterkari tengsl við önnur Evrópuríki.
Aðspurður hvort Starmer væri að reyna að höfða til múslimskra kjósenda svaraði Trump stuttlega að það gæti verið.
Gagnrýndi einnig borgarstjóra Lundúna
Trump gagnrýndi jafnframt borgarstjóra Lundúna, Sadiq Khan, og sagði borgina hafa breyst mikið á síðustu árum, en það er ekki í fyrsta skipti og hefur Trump meðal annars kallað Khan „ógeðslegan mann“.
Hann hvatti bresk stjórnvöld til að auka olíuvinnslu í Norðursjó og grípa til harðari aðgerða í innflytjendamálum. Hann sagði orkuverð í Bretlandi vera of hátt og að bresk stjórnvöld ættu að stöðva komu fólks sem hati landið.
Bresk stjórnvöld hafna ásökunum
Breskir ráðherrar hafa hafnað ásökunum forsetans. Darren Jones, ráðherra í ríkisstjórn Starmer, sagði að Bretland tæki ákvarðanir með tilliti til breskra laga og hagsmuna breskra ríkisborgara, óháð trú þeirra.
Hann ítrekaði að Bretland ætlaði ekki taka þátt í mannskæðum átökum í Miðausturlöndum, þrátt fyrir að hafa heimilað Bandaríkjunum að nýta ákveðnar herstöðvar á breskum yfirráðasvæðum.