Trump Bandaríkjaforseti sagðist í sjónvarpsviðtali vera handviss um að Bandaríkin nái yfirráðum á Grænlandi. Hann sagði góðan möguleika á að það gerist án hernaðaríhlutunar en útilokaði hana samt ekki, en þetta segir í frétt á Rúv.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa átt alvörugefin samtöl um að taka yfir Grænland. Hann segir góðan möguleika á því að það gerist án hernaðaríhlutunar en útilokar það samt ekki.
Þetta sagði Trump í viðtali við sjónvarpsstöðina NBC í Bandaríkjunum.
„Við náum Grænlandi. Já, 100%,“ sagði Trump í viðtali við sjónarpsstöðina NBC, Hann sagði að það væru góðar líkur á að það gerist án hernaðaríhlutunar en „ég útiloka það samt ekki.“
Hann sagðist ekki hafa miklar áhyggjur af því hvaða skilaboð þetta myndi senda umheiminum, og hvað þá Rússlandi: „Mér er alveg sama. Grænland er allt annað, það er mjög frábrugðið. Það snýst um frið á alþjóðarvísu, öryggi og styrk á alþjóðavísu.“