Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því í morgun á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, að hann hafi ákveðið að skilgreina ANTIFA sem „stórhættuleg hryðjuverkasamtök.“
Í færslu sinni kallaði hann hreyfinguna „hættulega og róttæka vinstrisinnaða hörmung“ og sagði að þeir sem fjármagna samtökin verði teknir til rannsóknar.
„Það er með ánægju að ég tilkynni föðurlandsvinum í Bandaríkjunum um að ég mun skilgreina ANTIFA, ÞESSA GEÐVEIKU, HÆTTULEGU, RÓTTÆKU VINSTRIHREYFINGU, SEM HÆTTULEG HRYÐJUVERKASAMTÖK. Ég mun einnig eindregið mæla með því að þeir sem fjármagna ANTIFA verði rannsakaðir í samræmi við lög. Þakka ykkur fyrir!“ skrifaði forsetinn.
Stuttu síðar birti opinberi reikningur Hvíta hússins tilkynninguna á X þar sem orðsendingin var endurbirt óbreytt.
Engin lagagrundvöllur til staðar – enn sem komið er
Ekki liggja fyrir upplýsingar um lagalegan grundvöll slíkrar skilgreiningar, þar sem ANTIFA eru ekki formleg samtök heldur lauslega tengd grasrótarhreyfing án skipulagðrar stjórnar eða miðlægrar fjármögnunar.
Hvenær þetta verður fest í lög er ekki enn ljóst.
🚨 „I am pleased to inform our many U.S.A. Patriots that I am designating ANTIFA, A SICK, DANGEROUS, RADICAL LEFT DISASTER, AS A MAJOR TERRORIST ORGANIZATION…“ – President Donald J. Trump pic.twitter.com/irLHCkrX1n
— The White House (@WhiteHouse) September 18, 2025