Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, undirritaði í dag forsetatilskipun sem á að verða til þess að lækka verð á lyfjum fyrir bandaríska sjúklinga, með sérstaka áherslu á eldri borgara og tekjulága hópa.
Tilskipunin er sögð byggja á aðgerðum sem Trump hóf á sínu fyrsta kjörtímabili og stefnir að meira gegnsæi, samkeppni og beinum sparnaði fyrir neytendur.
Sparnaður fyrir Medicare og tekjulága
Tilskipunin felur í sér breytingar á Medicare kerfinu með það að markmiði að ná fram meiri sparnaði fyrir neytendur.
Meðal aðgerða eru:
• Samræming á greiðslum Medicare við raunverulegan innkaupakostnað sjúkrahúsa, sem á að lækka verð á lyfjum um allt að 35%.
• Staðlaðar greiðslur óháð staðsetningu, sem getur lækkað lyfjaverð um allt að 60%.
• Lækkað verð á insúlíni og fyrir tekjulága og ótryggða niður í aðeins $0,03 fyrir insúlín en ofan á það getur komið þjónustugjald.
Ætla að stöðva græðgisvæðingu
Trump segir tilskipunina endurspegla skuldbindingu sína um að binda enda á óréttlæti á lyfjamarkaði.
Meðal nýrra skrefa eru:
• Aukin framleiðsla og aðgengi að samheita- og líftæknilyfjum, sem geta verið allt að 80% ódýrari en þau sem fáanleg eru á bandarískum markaði undir lögum bandaríska lyfjaeftirlitsins.
• Opinber birting gjalda sem lyfjafyrirtæki greiða læknum fyrir að ávísa þeirra lyfjum sérstaklega til sjúklinga sinna.
• Vinna að umbótum á samkeppnismarkaði lyfjafyrirtækja til að tryggja samkeppni og skilvirkni.
Trump: „Bandarískir sjúklingar verða í fyrsta sæti“
Robert F. Kennedy, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, hefur lengi gagnrýnt þá iðju að löglegt sé fyrir lyfjafyrirtæki að greiða læknum sérstaklega fyrir að skrifa upp lyf sem framleidd eru af sama fyrirtæki fyrir sjúklinga.
Þetta er fyrirbæri sem eingöngu er leyfilegt í Bandaríkjunum og er tilskipuninni ætlað að gera alla slíka samninga opinbera.