Trump útilokar Sadiq Khan frá öllum viðburðum í opinberri heimsókn: „Hann er ógeðslegur“

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að hann hafi persónulega komið í veg fyrir að Sir Sadiq Khan, borgarstjóri London, fengi að vera viðstaddur opinbera heimsókn hans til Bretlands.

Fréttin var fyrst sögð í Daily Mail, en þar kemur fram að Trump hafi í viðtali um borð í Air Force One lýst yfir algjörri fyrirlitningu sinni á Khan og sagt: „Ég held að borgarstjórinn í London sé einn versti borgarstjóri í heimi og við höfum marga slæma.“

Auglýsing

Trump bætti við að Khan hafi viljað taka þátt í heimsókninni, „en ég vildi það ekki. Ég hef lengi verið ósáttur við hann.“

„Stungur, skítur og sorp“

Trump hélt áfram og sagði Khan hafa staðið sig afleitlega sem borgarstjóri: „Glæpir í London eru í hæstu hæðum. Ég ber hlýju til London og Bretlands, móðir mín fæddist í Skotlandi. Þegar ég sé hvernig Khan hefur breytt borginni, með öllum stungunum, skítinum og óreiðunni, þá er það ekki sama borgin. Ég vildi hann ekki viðstaddan.“

Aðspurður um málið hefur embætti borgarstjórans í London ekki enn tjáð sig við fjölmiðla.

Langvarandi deilur forseta og borgarstjóra

Ágreiningur milli Trumps og Khans er ekkert nýtt fyrirbrigði.

Khan hefur ítrekað gagnrýnt Trump í opinberum ræðum og greinum, meðal annars í pistli í The Guardian skömmu fyrir heimsókn forsetans.

Í greininni sakaði Khan Trump um að kynda undir hægri öfgastefnu og að nota „einræðisherrataktík“ og sagði hann kenna minnihlutahópum um vandamál samfélagsins.

Ógeðslegur

Þegar Trump heimsótti Skotland í júlí kallaði hann Khan „ógeðslegan einstakling“ og „hræðilegan borgarstjóra“.

Khan svaraði því í gríni á Edinborgarhátíðinni: „Mér líður stundum eins og níu ára barni aftur. Þetta er eins og að vera í skólanum.“

Hann bætti við: „Það segir svolítið um heiminn þegar einhver sem hefur skoðanir á svörtum, konum, samkynhneigðum, múslimum og Mexíkóum kallar mig ‘ógeðslegan’. Þetta er leiðtogi hins frjálsa heims. Virkilega?“

Ágreiningurinn náði hámarki árið 2019 þegar Khan leyfði flugblöðru sem líkti Trump við barn í bleyju að fljúga yfir London á meðan á opinberri heimsókn forsetans stóð.

Árið 2016 skoraði Trump svo á Khan að taka greindarpróf eftir að hann sakaði forsetann um „fávitaskap“ gagnvart múslimum.

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing