Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ætla að grípa til aðgerða til að banna stórum fjárfestum að kaupa íbúðir og einbýlishús í Bandaríkjunum sem ætluð eru almenningi.
Markmiðið sé að auka aðgengi almennra borgara að húsnæði og gera fasteignamarkaðinn viðráðanlegri fyrir fjölskyldur.
Trump greindi frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum á miðvikudag og sagði drauminn um eigin húsnæði verða sífellt fjarlægari fyrir venjulega Bandaríkjamenn.
Að hans mati þurfi stjórnvöld að grípa inn í til að snúa þróuninni við.
„Ég er þegar að hefja aðgerðir til að banna stórum fjárfestum að kaupa fleiri einbýlishús og mun kalla eftir því að þingið lögfesti slíkt bann,“ skrifaði Trump. „Fólk býr í húsum, ekki fyrirtæki.“
Hann bætti við að nánari útfærsla yrði kynnt síðar í mánuðinum á ráðstefnu í Davos í Sviss.
Hvítahúsið veitir litlar upplýsingar
Talsmenn Hvíta hússins vildu ekki veita frekari upplýsingar um hvernig bannið yrði útfært eða hvaða fjárfestar myndu taka í það.
Óljóst er einnig hvort um forsetatilskipun, lagafrumvarp eða blöndu þessara tveggja verði að ræða.
Tilkynningin hafði þó strax áhrif á fjármálamarkaði.
Hlutabréf stórra fasteignaleigu- og rekstrarfélaga lækkuðu mikið í kjölfarið, þar á meðal félaga sem eiga og leigja út þúsundir einbýlishúsa víðs vegar um Bandaríkin, eins og Blackstone.
Samkvæmt greiningu frá síðasta ári eiga fjárfestar um eitt prósent af öllum einbýlishúsum í landinu.
Hlutfallið er þó mun hærra í sumum stórborgum, meðal annars í Atlanta, Dallas og Houston, þar sem eignarhald þeirra nær tveimur til fjórum prósentum.
Í skýrslunni kemur fram að slíkir fjárfestar ráði sjaldnast heilum hverfum, en séu oft með sterkari stöðu í hverfu þar sem millistéttar- eða tekjulægra fólk býr.
Áhrif á leigu og fasteignaverð
Rannsóknir benda engu að síður til þess að aukin þátttaka stórra fjárfesta á húsnæðismarkaði geti haft neikvæð áhrif fyrir neytendur.
Skýrsla bandaríska ríkisendurskoðunarinnar frá árinu 2024 leiddi í ljós að slíkar fjárfestingar geti keyrt upp bæði leiguverði og fasteignaverði, einkum þar sem eignarhaldið er mikið.
Samtök sem tala fyrir hagsmunum fasteignaeigenda hafa lýst yfir stuðningi við aðgerðir sem takmarka kaup stórra fjárfesta á íbúðarhúsnæði.
Fulltrúi slíkra samtaka sagði að hvert hús sem fari í hendur stofnanafjárfestis sé einu húsi færra fyrir fólk sem vilji kaupa sér eigið heimili.
Efasemdir meðal sérfræðinga
Sumir sérfræðingar eru efins um að bann við kaupum stofnanafjárfesta muni skila tilætluðum árangri.
Þeir benda á að slíkir fjárfestar kaupi oft illa farin hús, geri þau upp og setji aftur á markað, sem auki framboð.
Að þeirra mati gæti bann jafnvel haft ófyrirséðar afleiðingar, til dæmis með því að fjárfestar haldi frekar í þær eignir sem þeir eiga nú þegar.
BREAKING: President Trump announces steps to ban large institutional investors from buying single-family homes.
„People live in homes, not corporations.“ – President Donald J. Trump 🇺🇸 pic.twitter.com/MvG2mGodR2
— The White House (@WhiteHouse) January 7, 2026