Stjórn Donalds Trump forseta Bandaríkjanna hóf á þriðjudag umfangsmiklar uppsagnir innan bandaríska heilbrigðiskerfisins.
Aðgerðirnar ná yfir stofnanir á borð við Matvæla- og lyfjaeftirlitið (FDA), Sóttvarnastofnunina (CDC) og Heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna (NIH), samkvæmt heimildum Reuters.
Starfsmönnum vísað frá með skömmum fyrirvara
Sumir starfsmenn fengu tilkynningu um uppsögn aðeins nokkrum klukkutímum áður en þeir komu til vinnu og voru stöðvaðir við dyr bygginga af öryggisvörðum.
Fengu þeir framvísað miða með símanúmerum deilda þar sem fólki stóð til boða að nálgast nauðsynlegan búnað.
Röð myndaðist við aðalbyggingar HHS í Washington og Rockville, þar sem fólk beið í óvissu um hvort þeim hefði verið sagt upp.
Yfirmenn og sérfræðingar víkja
Meðal þeirra sem yfirgáfu störf voru hátt settir sérfræðingar og forstöðumenn, m.a. Peter Stein, yfirmaður lyfjadeildar FDA, og Brian King, forstöðumaður tóbaksdeildar.
Jeanne Marrazzo, arftaki Anthony Fauci hjá NIAID, var einnig rekin. Henni var þó boðið nýtt starf hjá heilbrigðisþjónustu fyrir frumbyggja.
„FDA eins og við þekktum hana er horfin“
Robert Califf, fyrrverandi yfirmaður FDA, lýsti áhyggjum sínum í færslu á LinkedIn:
„FDA eins og við þekktum hana er búin. Flestir leiðtogar með stofnanaminni og þekkingu á lyfjaöryggi eru farnir.“
Hann bætti við að þetta yrðu mistök í sögulegu samhengi.
Kennedy: Skera þarf niður „báknið“
Robert F. Kennedy Jr., heilbrigðisráðherra sagði aðgerðirnar nauðsynlegar til að „einbeita sér að kjarnaáherslum“ HHS og koma í veg fyrir langvinnan sjúkdóma.
Starfsmannafjöldi ráðuneytisins fer úr 82.000 niður í 62.000.
Uppsagnirnar áttu sér stað sama dag og nýr FDA-forstjóri, Marty Makary, og NIH-stjóri, Jay Bhattacharya, hófu störf.
Báðir voru staðfestir í embætti af öldungadeild Bandaríkjaþings í síðustu viku.