Tveir unglingar sem játað hafa að hafa ekið viljandi á lögreglustjóra á eftirlaunum í Las Vegas hafa verið dæmdir til fangelsisvistar.
Þeir óku mannin niður þar sem hann var á reiðhjóli reiðhjóli og tóku verknaðinn upp á myndband.
Jesus Ayala, 20 ára, hlaut dóm upp á 20 ár til lífstíðar í fangelsi, en Jzamir Keys, 18 ára, var dæmdur í 18 ár til lífstíðar.
Dómarnir voru kveðnir upp í Nevada á þriðjudag.
Báðir höfðu játað sekt í málinu.
Þótt þeir hafi verið ákærðir sem fullorðnir voru þeir ólögráða þegar brotið var framið og geta því samkvæmt lögum í Nevada ekki hlotið dauðarefsingu.
Myndband sýndi ásetning
Málið vakti mikla athygli eftir að myndband fór í dreifingu á samfélagsmiðlum.
Þar sést innan úr úr bíl sem nálgast Andreas Probst, 64 ára, að aftan þar sem hann hjólar upp við gangstétt.
Þá heyrast hlátrasköll og hvatningar einhvers inni í bílnum að keyra á manninn áður en ekið er á hann.
Síðasta myndin sýnir Probst liggjandi við kantinn.
Atvikið var fyrst skráð sem slys þar sem ekið var af vettvangi, en eftir að myndbandið kom fram á samfélagsmiðlum bætti lögreglan í Las Vegas við morðákæru.
Ayala var ökumaður bílsins, sem ofan á allt var stolinn, en Keys farþegi og sá sem tók upp myndbandið.
Atvikið átti sér stað 14. ágúst 2023.
Afbrotaferð sem stigmagnaðist
Samkvæmt rannsakendum hófst afbrotaferð unglinganna snemma um morguninn.
Þeir stálu alls fjórum bílum og óku meðal annars á annan hjólreiðamann, 72 ára, sem lifði árásina af.
Frekari ákærur
Ayala var handtekinn í ágúst 2023 og mun hafa gert lítið úr alvarleika málsins við handtöku.
Hann var síðar talinn ósakhæfur um tíma og vistaður á öryggisgeðdeild en dómari úrskurðaði hann síðar sakhæfan.
Hann sætir ákæru um tilraun til manndráps í öðru máli, þar sem hann er sakaður um að hafa stungið mann í andlitið í júní 2023.
Aðstandendur Probst hafa jafnframt höfðað skaðabótamál gegn Hyundai og halda því fram að galli í þjófavarnarkerfi bílsins hafi gert unglingunum kleift að stela honum.