Tveir farþegar settir á bið hjá Icelandair þrátt fyrir keypt sæti – „Óþarfa kvíði og stress“

Tveir íslenskir farþegar á sitt hvorri bókuninni hafa verið settir á bið hjá Icelandair á leið frá Alicante til Keflavíkur þrátt fyrir að flugmiðarnir hafi verið keyptir með margra mánaða fyrirvara og sæti pöntuð með ferðunum.

Málið vakti athygli í Facebook hópnum Íslendingar á Spáni Costa Blanca á þriðjudagskvöld.

Auglýsing

Annar farþeganna, sem er nýorðinn 18 ára, átti að fljúga frá Alicante til Keflavíkur í kvöld, 18. ágúst. Hann hafði innritað sig á netinu en var engu að síður settur á bið eftir sæti.

„Finnst þetta valda óþarfa kvíða og stressi,“ segir aðstandandi farþegans í samtali við Nútímann.

Fékk sæti að lokum

Farþeginn fékk að lokum sæti um borð. Að sögn aðstandandans fékk hann sæti við gang og þegar komið var um borð reyndist miðjusætið við hlið hans vera laust.

Í uppfærslu á færslunni kom fram að fjórir farþegar hefðu verið á bið fyrir flugið, en ekki lá fyrir hvort þeir hefðu allir fengið sæti.

Hinn farþeginn á bókað flug frá Alicante til Keflavíkur miðvikudaginn 19. ágúst og sýna gögn sem Nútíminn hefur fengið að sjá að staða hans við innritun er sömuleiðis „sæti á bið“.

Um er að ræða tvo mismunandi einstaklinga á aðskildum bókunum. Að sögn aðstandandans voru miðarnir keyptir í janúar og febrúar og báðir farþegarnir höfðu innritað sig á netinu.

Fleiri segjast hafa lent í þessu

Fleiri í hópnum lýsa sambærilegri reynslu í athugasemdum við færsluna.

Ein manneskja segist hafa keypt flugmiða í febrúar en engu að síður ekki komist með fyrirhuguðu flugi frá Alicante 6.ágúst. Viðkomandi segist hafa þurft að ferðast heim tveimur dögum síðar með millilendingu í Frankfurt.

Önnur segir einn einstakling úr 17 manna hópi hafa verið settan á bið fyrir um viku síðan.

Í umræðunni kom einnig fram að farþegum hefði verið sagt á flugvellinum að þeir sem ekki innrituðu sig á netinu gætu átt von á að lenda í slíkri stöðu. Í þeim tveimur tilvikum sem hér um ræðir höfðu farþegarnir hins vegar báðir innritað sig á netinu.

Ekki liggur fyrir hvers vegna farþegarnir voru settir á bið eða hvort um hafi verið að ræða ofbókun, breytingu á flugvél eða aðrar rekstrarlegar ástæður.

Nútíminn hefur sent Icelandair fyrirspurn vegna málsins og óskað skýringa á því hvers vegna farþegi með staðfesta bókun og pantað sæti getur verið settur á bið. Fréttin verður uppfærð berist svar frá félaginu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing