Tveir handteknir með aðstoð sérsveitarinnar á Selfossi

Tveir einstaklingar voru handteknir á Selfossi í kvöld í aðgerð lögreglunnar á Suðurlandi, sem naut aðstoðar sérsveitar og fjarskiptamiðstöðvar ríkislögreglustjóra.

Jón Gunnar Þórhallsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Selfossi, staðfesti handtökurnar í samtali við sunnlenska.is.

Auglýsing

Útkall barst lögreglu um sjö leytið í dag.

Hinir handteknu voru staddir í einbýlishúsi í bænum og var lokað fyrir umferð nærliggjandi hverfi á meðan lögregla sat um húsið.

Sjúkrabíll frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands og tækjabíll frá Brunavörnum Árnessýslu voru einnig til taks í nágrenninu.

Að sögn Jóns Gunnars var það gert sem varúðarráðstöfun.

Aðgerðin stóð yfir í um þrjár klukkustundir og gátu íbúar í hverfinu ekki komist heim til sín á meðan á henni stóð.

Jón Gunnar sagði einnig að sú ráðstöfun hefði verið gerð til að tryggja öryggi á vettvangi.

Að öðru leyti vildi hann ekki veita frekari upplýsingar um málið á þessu stigi. Málið er nú til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi.

Heimild: Sunnlenska.is

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing