Tvítugur maður af marokkóskum uppruna grunaður um að hafa orðið 89 ára spænskri konu að bana fyrir tveggja evra hálsmen

Tvítugur maður af marokkóskum uppruna er grunaður um að hafa orðið 89 ára konu að bana við ofbeldisfullt rán í Murcia á Spáni. Maðurinn hafði samkvæmt spænskum fjölmiðlum verið handtekinn nærri 30 sinnum áður vegna ýmiss konar afbrota.

Fórnarlambið hét Carmen Hidalgo Alarcón en var jafnan kölluð Carmelina. Hún var á leið heim frá félagsmiðstöð eldri borgara í Puente Tocinos að kvöldi 11. nóvember 2025 þegar tveir menn réðust að henni.

Auglýsing

Árásarmennirnir reyndu að slíta hálsmen af Carmelinu með þeim afleiðingum að hún féll og var dregin eftir götunni. Hún hlaut alvarlega áverka, meðal annars mjaðmagrindarbrot, og var flutt á sjúkrahús.

Carmelina lést fjórum dögum síðar af völdum áverkanna.

Hálsmenið aðeins tveggja evra virði

Samkvæmt El Español var hálsmenið ódýr skartgripur með silfurlituðum krossi. Verðmæti þess var talið aðeins tvær evrur, jafnvirði um 290 íslenskra króna.

Sonur Carmelinu lýsti henni sem hlýlegri og hjálpsamri konu sem hefði verið vel þekkt og elskuð í hverfinu. Fjölskyldan kallaði eftir aðstoð almennings við að finna þá sem bæru ábyrgð á dauða hennar.

Í felum í 133 daga

Lögreglan handtók tvítuga manninn 25. mars sl., 133 dögum eftir árásina. Samkvæmt spænskum fjölmiðlum hafði hann haldið sig í felum á heimili kærustu sinnar. Hún var einnig handtekin, grunuð um að hafa aðstoðað hann við að komast undan lögreglu, en var síðar látin laus.

Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald án möguleika á lausn gegn tryggingu. Hann er rannsakaður vegna manndráps og fimm ofbeldisrána.

Spænski ríkismiðillinn ORM greindi frá því að maðurinn hefði verið handtekinn nærri 30 sinnum áður, meðal annars vegna rána og þjófnaða.

Rannsókn málsins hélt áfram eftir handtöku hans enda taldi lögregla að fleiri hefðu komið að árásinni. Þriðji maðurinn var handtekinn í ágúst vegna gruns um aðild að ráninu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing