Í færslu sem birtist í Facebook-hópnum Reykjanesbær – Gerum góðan bæ betri, lýsir móðir því hvernig 17 ára dóttir hennar varð fyrir mjög óhugnanlegu atviki í bænum sem hún segir að hefði getað haft alvarlegar afleiðingar.
Stúlkan var ein á göngu á svæði við Byko þegar hún varð vör við tvo eldri karlmenn sem störðu á hana, mældu hana með augunum og brostu.
Þegar hún reyndi að halda áfram kölluðu þeir á eftir henni.
Eltu hana á bíl
Einn þeirra fór inn í bíl en inni í honum voru fleiri karlmenn á svipuðum aldri og hópurinn elti stúlkuna á með því að keyra á eftir henni.
„Þegar hún leit við brosti hann og kallaði eitthvað á eftir henni,“ skrifar móðirin í færslunni.
Hræðsla greip hana og hún ákvað að fara út af gangstéttinni, inn á grasbala nálægt Stóru milljón þar sem hún taldi að bíllinn kæmist ekki nær henni.
Stúlkan tók þá á rás og hljóp eins hratt og hún gat í átt að Hótel Keflavík og bíllinn á eftir.
Þegar hún gerði sig líklega til að fara þar inn sneru mennirnir við.
Móðirin bálreið
Samkvæmt móðurinni voru mennirnir greinilega erlendir og töluvert eldri en stúlkan.
Móðirin lýsir mikilli reiði og segir dóttur sína hafa verið svo skelkaða að hún þorði ekki að hringja á lögregluna, af ótta við að það gæti gert illt verra.
Í lok færslunnar spyr móðirin hvort mögulegt sé að tilkynna slíkt atvik eftir á, þar sem dóttirin gæti mögulega borið kennsl á einn mannanna.
Kommentarkerfið kannast við mennina
Í ummælum undir færslunni segjast nokkrir einstaklingar kannast við mennina.
Ein skrifar:
„Alltaf hópur af óþægilegum eldri mönnum þarna ef td keyrir framhjá þeir eru ekkert að spara það að stara fast á eftir.“
Og önnur er sammála:
„Var elt heim um daginn af manni, var úti að hlaupa einmitt þarna hjá byko og hann elti mig alla leiðina heim, hann beið eftir að sjá í hvaða íbúð ég fór inn í.. (var útlendingur) mjög óþægilegt.“
Og einn karlmaður skrifar:
„Fyrir nokkrum vikum síðan að næturlagi þá sé ég áberandi ölvaða konu á Hafnargötunni þegar ég er að ganga að bílnum mínum. Ég bíð aðeins á meðan hún gengur framhjá mér svo leiðir okkar skerast ekki, ég nenni ekki að standa í neinu veseni, en á meðan á biðinni stendur þá tek ég eftir að það er bíll sem dólar á eftir henni þannig að ég fer að fylgjast betur með en missi sjónar af þeim í stutta stund á meðan ég fer í bílinn. Ég veit ekki hvert konan fór en bíllinn dólar Austurgötuna og Framvegsveginn fram og til baka og er engu líkara en hann sé að leita að konunni. Ég tek niður númerið og lýsingu á bílnum og konunni og tilkynni þetta því mér fannst þetta frekar óeðlileg hegðun hjá bílstjóranum. Ég veit ekkert hvað kom út úr því, líklega ekkert. Ég hafði aldrei séð þennan bíl áður eða aldrei tekið eftir honum en sé hann svo til um hverja helgi að næturlagi eftir þetta en þetta virðist vera skutlari. Þetta var erlendur ungur karlmaður en ég tók fyrst eftir bílnum og síðast eftir manninum og hefur þetta því ekkert með fordóma að gera.“
Fyrir neðan eru svo ummælin sem um ræðir.