Ungir menn birta myndir af sér dansandi ofan á bílum – Flagga því sem virðast vera hríðskotabyssur og skammbyssur

Myndir og myndbönd af ungum mönnum með það sem virðast vera byssur birtust í Facebook hópnum Ísland – Þvert á Flokka.

Myndböndin voru birt á TikTok aðganginum Abuhamsa255 en búið er að klippa út partinn þar sem byssurnar birtast þar en að sögn nokkurra aðila leyfir TikTok ekki birtingu skotvopna á miðlinum.

Auglýsing

Myndbandið á TikTok er 18 sekúndum styttra en það sem Nútíminn hefur undir höndum, en skjáskotin sem um ræðir eru úr myndbandinu hér fyrir neðan.

Sigfús Aðalsteinsson birti skjáskotin upprunalega og sagðist hafa tilkynnt þau til lögreglu en hann birtir einnig skjáskot af eigendum bílanna og nafngreinir eigendurna, en annar bíllin er í eigu bílaleigu Flugleiða en hinn í einkaeigu.

Eftir birtinguna birtust myndböndin svo í heild sinni í sama Facebook hóp.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing