Lögreglan í Madrid skaut 18 ára karlmann á laugardag eftir alvarlegt atvik í Puente de Vallecas hverfinu.
Maðurinn, sem er spænskur ríkisborgari af marokkóskum uppruna, er sagður hafa hafa stungið þrjá vegfarendur og hrópað „Allahu Akbar“ þegar lögreglumenn nálguðust hann.
Atvikið hófst um klukkan tvö á Martin Alvarez-stræti þegar tilkynnt var um mann af arabískum uppruna sem hefði ráðist með hnífi á fólk, þar á meðal aldraða konu og 40 ára karlmann.
Leitaði skjóls heima hjá sér
Nokkrum klukkustundum síðar hringdi bróðir mannsins í lögreglu og tilkynnti að hann væri lokaður inni á heimili sínu, vopnaður stórum hníf og væri mjög árásargjarn.
Að sögn spænskra fjölmiðla ákváðu yfirvöld að taka á málinu eins og um hryðjuverk væri að ræða og sendu sérhæfða sveit á vettvang.
Lögreglumenn komust inn í íbúðina um klukkan hálffimm og beittu rafbyssum tvisvar sinnum án árangurs.
Maðurinn á að hafa reynt að ráðast á þá á ný og þá skutu lögreglumenn hann fjórum sinnum.
Lögregla segir aðgerðir hafa verið réttmætar
JUPOL, eitt stærsta lögreglusamband Spánar, sendi lögreglumönnunum stuðning í yfirlýsingu og sagði að þeir hefðu „brugðist á hófsaman hátt“ við árás mannsins.
Maðurinn er á sjæúkrahusi og er í lífshættu.
Rannsókn stendur yfir
Lögregla rannsakar málið áfram sem hugsanlegt islamískt hryðjuverk, en þó hafa fjölmiðlar greint frá því að maðurinn hafi verið undir áhrifum fíkniefna.
Sár hinna þriggja sem hann er sakaður um að hafa stungið eru ekki talin lífshættuleg.