Deila um flutning rússneskrar hráolíu um Druzhba leiðsluna hefur harðnað verulega og stigmagnast en deilan er millii Ungverjalands, Slóvakíu og Úkraínu. Málið hefur nú einnig áhrif á fjárhagsaðstoð Evrópusambandsins til Úkraínu.
Sprenging við olíustöðina Druzhba – ásakanir á víxl
Staðfest er að sprenging varð við hluta Druzhba olíuleiðslukerfisins og myndbönd af atvikinu er hægt að finna á samfélagsmiðlum. Tjónið leiddi til þess að flutningar rússneskrar hráolíu til Ungverjalands og Slóvakíu stöðvuðust. Á samfélagsmiðlum hafa komið fram fullyrðingar um að Druzhba 1 stöðin hafi verið sprengd og en hún sér stórum hluta Ungverjalands fyrir olíu og nær allri Slóvakíu.
What a day
The Druzhba-1 station at Kaleikino, the key node of the Druzhba oil pipeline, was blown up by Ukraine.
– It accounts for 86% of Hungary’s oil consumption
– And ~100% of Slovakia’s oil consumption
– As a response, Slovakia announced it will halt electricity supplies… pic.twitter.com/Kl22bFllwm— Lukas Ekwueme (@ekwufinance) February 23, 2026
Deilt er um hver ber ábyrgð á skemmdunum. Úkraínsk yfirvöld hafa sagt að rússnesk drónaárás hafi valdið tjóninu. Ungversk og slóvakísk stjórnvöld hafa hins vegar gefið í skyn að tafir á viðgerðum sé pólitísk ákvörðun frá Kænugarði.
Stöðva olíuflutning til Úkraínu
Ungverjaland og Slóvakía tilkynntu í vikunni að þau hefðu stöðvað útflutning á díselolíu til Úkraínu. Ríkisstjórnir beggja landa sögðu nauðsynlegt að tryggja innlent orkuöryggi og beina öllum sínum birgðum til notkunar innanlands.
Utanríkisráðherra Ungverjalands, Péter Szijjártó, sagði að engin olía færi úr landi fyrr en hráolíuflutningar um Druzhba hefjast á ný. Hann sakaði Úkraínu um að kúga Ungverjaland með því að koma í veg fyrir flutning olíu inn í landið.
Í Slóvakíu tilkynnti forsætisráðherrann Robert Fico að ríkisrekna hreinsistöðin Slovnaft myndi stöðva útflutning og takmarka dreifingu við innlendan markað. Slóvakía hefur jafnframt losað 250.000 tonn úr neyðarbirgðum sínum til að nota innanlands.
Hóta að stöðva raforku
Fico sagði jafnframt að Slóvakía myndi hætta neyðaraðstoð vegna raforku til Úkraínu ef olíuflutningar hefðust ekki á ný. Í Búdapest hafa stjórnvöld einnig sagt að til skoðunar sé að draga úr eða stöðva raforkusölu til Úkraínu.
Ungverjaland hindrar 90 milljarða evra lán
Á sama tíma hefur Ungverjaland lýst yfir að það muni hindra 90 milljarða evra vaxtalaust lán Evrópusambandsins til Úkraínu þar til olíuflutningar hefjast á ný. Lánapakkinn var samþykktur í desember til að styðja hernaðarlegar og efnahagslegar þarfir Úkraínu næstu tvö árin.
Szijjártó sagði að Ungverjaland myndi ekki styðja ákvarðanir innan ESB sem væru Úkraínu hagfelldar á meðan landið hindraði olíuflutninga til Ungverjalands.
Bréf til forseta Evrópuráðsins
Balázs Orbán, pólitískur ráðgjafi Viktors Orbán forsætisráðherra, skrifaði í færslu á X að Ungverjaland hefði þegar lokað fyrir lánapakkann og myndi ekki styðja nýjar refsiaðgerðir gegn Rússum eða aðgerðir sem væru hliðhollar Úkraínu á vettvangi ESB fyrr en orkumál væru komin í fyrra horf.
Í bréfi sem hann birtir með færslunni, sem stílað erá António Costa, forseta Evrópuráðsins, segir að engar tæknilegar hindranir standi í vegi fyrir endurupptöku flutninga um Druzhba og að málið sé eingöngu háð pólitískum duttlungum yfirvalda í Kænugarði.
‼️We will not let Kyiv’s blackmail go unanswered. We will not stay silent while Brussels sides with Ukraine against the Hungarian people‼️
In a letter, @eucopresident António Costa attempted to pressure 🇭🇺Hungary into approving the €90 billion Ukraine loan and warned of… pic.twitter.com/yS3IXeH51V
— Balázs Orbán (@BalazsOrban_HU) February 24, 2026
Ekki liggur fyrir opinber staðfesting frá ungverskum stjórnvöldum á bréfinu en það er merkt Politico og birt á opinberum aðgangi Orbán.
ESB segir orkuöryggi ekki í hættu
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hins vegar sagt að orkuöryggi Ungverjalands og Slóvakíu sé ekki í hættu og að bæði ríki búi yfir nægum birgðum.
Flest ríki Evrópu hafa dregið verulega úr eða hætt alfarið beinum innflutningi rússneskrar orku frá því innrásin í Úkraínu hófst árið 2022. Ungverjaland og Slóvakía hafa þó haldið áfram að flytja inn rússneska olíu og gas með tímabundinni undanþágu frá bannreglum ESB.
Þrátt fyrir að þau séu hætt því með beinum hætti er ekkert lát á kaupum landa eins og Þýskalands með óbeinum hætti frá Rússlandi, eins og Nútíminn hefur sagt frá áður.