Útlendingar leita skýringa á styrk Íslendinga – Skyr, steinar og Skaftáreldar koma við sögu

Hvað er það við Ísland sem veldur því að landið hefur alið af sér svo marga af sterkustu mönnum heims? Þessari spurningu reynir YouTube rásin CuriousReason að svara í nýju myndbandi með því að skoða sögu landsins þar sem landnámsmenn, aflraunasteinar, skyr og Skaftáreldar leggjast á eitt um að búa til kraftajötna.

Jón Páll Sigmarsson og Magnús Ver Magnússon urðu fjórum sinnum hvor sterkasti maður heims og Hafþór Júlíus Björnsson vann titilinn árið 2018. Það gera níu titla hjá þremur Íslendingum.

Auglýsing

Steinarnir fá sitt hlutverk

Í myndbandinu er meðal annars farið á Djúpalónssand, þar sem menn reyndu áður krafta sína á steinum sem bera nöfnin Amlóði, Hálfdrættingur, Hálfsterkur og Fullsterkur. Sá síðastnefndi vegur 154 kíló.

Skyr fær líka veglegt hlutverk. Það er kynnt til sögunnar sem aldagamall próteingjafi sem íslensk börn hafi fengið löngu áður en nokkrum datt í hug að selja próteinduft í plastdunkum.

Langt seilst í útskýringum

Síðan færist myndbandið yfir á hálari ís. Þar er því meðal annars haldið fram að einangrun þjóðarinnar, kalt loftslag og hungursneyð í kjölfar Skaftárelda hafi mótað líkamsbyggingu Íslendinga og lagt grunninn að velgengni þeirra í aflraunum.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing