Vélfag segir upp öllum starfsmönnum – rekstrarforsendur brostnar

Vélfag ehf. tilkynnti í dag að félagið hafi orðið að ráðast í hópuppsögn allra starfsmanna, eftir að rekstrarforsendur fyrirtækisins hafa „algerlega brostið“ í kjölfar aðgerða Utanríkisráðuneytisins og Arion banka.

Í tilkynningu félagsins segir að frysting bankareikninga, skortur á aðgengi að starfsfé og óvissan sem skapast hefur undanfarna mánuði hafi gert eðlilegan rekstur ómögulegan.

„Ákvörðunin er tekin vegna þess að rekstrarforsendur fyrirtækisins hafa algerlega brostið … aðgerðir Utanríkisráðuneytisins og Arion banka hafa gert félaginu ómögulegt að halda úti eðlilegri starfsemi,“ segir í yfirlýsingu Vélfags.

Enginn samstarfsvilji hjá stjórnvöldum

Auglýsing

Fyrirtækið segir að það hafi ítrekað reynt að fá skýringar, leiðréttingar og jafnræði í málsmeðferðinni, en án árangurs.

Vegna frystingar hafi Vélfag átt í verulegum erfiðleikum með að standa skil gagnvart starfsfólki, viðskiptavinum og birgjum sem leiddi að lokum til þessarar neyðaraðgerðar.

Héraðsdómur sýknaði ríkið í Vélfagsmálinu – Kaufman telur niðurstöðuna „fyrirfram ákveðna“

„Hópuppsögn er neyðarúrræði“

Í tilkynningunni er lögð áhersla á að þetta sé ekki stefnumarkandi ákvörðun, heldur neyðarúrræði við óviðráðanlegar aðstæður.

Fyrirtækið hyggst áfram halda málinu til streitu frammi fyrir dómstólum og „tryggja að réttur félagsins og hluthafa verði virtur“.

Stjórnendur þakka starfsmönnum sérstaklega fyrir ómetanlegt framlag, tryggð og seiglu á undanförnum mánuðum og á 30 ára starfssögu fyrirtækisins.

Þar segir að starfsfólkið hafi sýnt ótrúlega fagmennsku við mjög erfiðar aðstæður og að Vélfag sé stolt af sínu fólki.

Óvissa um framhaldið

Fyrirtækið segir að það muni áfram leitast við að halda starfseminni gangandi á meðan málsferli standa yfir og tryggja að skuldbindingar við starfsfólk, birgja og þjónustuaðila verði uppfylltar eftir fremsta megni.

Tilkynningunni lýkur á því að frekari upplýsingar verði birtar eftir því sem málið skýrist.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing