Vill óháða úttekt á hlutleysi RÚV

Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, fór hörðum orðum um RÚV í pontu Alþingis í gær.

Tilefnið var nýlegt hneyksli hjá BBC þar sem tveir háttsettir aðilar sögðu af sér eftir að í ljós kom að stöðin hefði klippt til ræðu Donald Trump.

Vísar í BBC hneykslið og líkir aðstæðum við Ísland

Auglýsing

Snorri rifjaði upp að hátt settir stjórnendur hjá BBC hefðu stigið til hliðar vegna þess sem hann lýsti sem grófum fölsunum.

Hann sagði að málið hefði sannað fyrir mörgum að fjölmiðillinn væri ekki hlutlaus.

Að hans mati hefðu margir Íslendingar svipaðar áhyggjur af RÚV.

Hann benti á að RÚV byggði í mörgu á vinnulagi BBC og hefði samkvæmt honum, þagað um málið þar til stjórnendur BBC voru búnir að segja af sér.

Sakir RÚV um pólitíska slagsíðu

Í ræðu sinni sakaði Snorri RÚV um að taka einhliða afstöðu í fjölda mála.

Hann nefndi sérstaklega transmál, loftslagsmál, útlendingamál og erlend stjórnmál, ekki síst bandarísk.

Hann sagði að þetta sæju allir sem vildu sjá og hélt því fram að margir upplifðu að RÚV ynni beinlínis gegn þeirra eigin heimssýn.

Snorri gagnrýndi jafnframt að almenningur væri skyldaður til að greiða fyrir þjónustu ríkisútvarpsins þrátt fyrir, að hans mati, pólitíska slagsíðu.

„Maður er með augu, maður er með eyru,“ sagði hann og hélt áfram að útskýra að margir starfsmenn RÚV hefðu tekið þátt í rammpólitískri baráttu.

Kallar eftir óháðri úttekt á hlutlægni RÚV

Snorri beindi síðan beinni fyrirspurn að menningar og viðskiptaráðherra.

Hann spurði hvort nokkur óháð úttekt hefði farið fram á hlutlægni RÚV í umdeildum samfélagsmálum eða í pólitískum fréttum almennt á undanförnum árum.

Að lokum spurði hann hvort ráðherrann væri reiðubúinn að styðja að slík úttekt yrði framkvæmd. Hann bætti við að hann óttaðist að ráðherrann myndi áfram, eins og hann orðaði það, gaslýsa þingmenn og almenning um að pólitísk slagsíða væri ekki vandamál á RÚV.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing