Kristín Waage greinir frá því í færslu á Facebook að brotist hafi verið inn í bíl sonar hennar á mánudagskvöldið 27. janúar. Að hennar sögn átti innbrotið sér líklega stað fyrir utan heimili hans við Neðstaleiti 11 í Reykjavík og var miklu magni af verðmætu vinnudóti stolið.
Í færslunni birtir Kristín skilaboð frá syni sínum þar sem hann lýsir atvikinu og biður almenning um aðstoð. Hann segir innbrotið hafa átt sér stað á milli klukkan 18:30 og 21:00. Bíllinn er hvítur VW Golf.
Vinnudót að verðmæti hundruð þúsunda horfið
Samkvæmt frásögn sonarins var vinnudóti að verðmæti um 738.000 króna stolið úr bílnum. Þar á meðal eru kokkahnífar, kokkaföt og kokkaskór, auk annars búnaðar. Hann er í námi í matreiðslu og segir að þjófnaðurinn hafi haft alvarleg áhrif á hann, þar sem hnífarnir séu helsta verkfæri hans í námi og vinnu.
„Þessi manneskja tók ekki bara allt dótið mitt heldur líka vinnuna mína,“ segir í færslunni. Hann segir hnífana skipta sig gríðarlega miklu máli, enda séu þeir forsenda þess að hann geti sinnt starfi sínu sem kokkanemi.
Telur gerandann hafa verið á ferð milli bíla
Í færslunni er grun lýst um að sá sem braust inn hafi gengið á milli bíla og valið sér skotmark. Bent er á að vegna þess hve mikið magn var stolið hafi viðkomandi ekki getað borið dótið langt í einni ferð. Því sé líklegt að einhver í hverfinu hafi orðið var við grunsamlegan mann á ferðinni þetta kvöld.
Leitað að vitnum – málið hjá lögreglu
Málið hefur verið tilkynnt til lögreglu og eigandinn segist vera í góðu samstarfi við hana. Hann hefur einnig farið yfir upptökur úr myndavélum í nágrenninu en óskar eftir vitnum sem gætu hafa séð eitthvað óvenjulegt við Neðstaleiti þetta kvöld.
Kristín Waage hvetur fólk sem kann að hafa upplýsingar um málið til að hafa samband, í þeirri von að vinnudótið finnist og að atvikið verði upplýst.