Ný þýsk rannsókn, sem birt hefur verið í ritrýnda vísindaritinu Frontiers in Epidemiology, dregur upp átakanlega mynd af ákvarðanatöku stjórnvalda í COVID-19 faraldrinum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru tvíþættar: Í fyrsta lagi, að aðeins um 14% þeirra sem greindust jákvæðir með PCR-prófi hafi raunverulega verið smitaðir af SARS-CoV-2. Í öðru lagi, og það sem er alvarlegra, er að höfundar fullyrða að þýsk yfirvöld, þar á meðal Robert Koch Institute (RKI), hafi haft aðgang að gögnum sem sýndu þetta en kosið að hunsa þau. Þess í stað hafi ákvarðanir um víðtækar samfélagslegar takmarkanir byggst á „vísindalega marklausum“ mælikvarða.
PCR-próf born saman við mótefnamælingar
Rannsóknin byggir á gögnum frá ALM, samtökum þýskra rannsóknarstofa sem önnuðust um 90% allra PCR-prófa í landinu. Rannsakendur báru saman uppsafnaðan fjölda jákvæðra PCR-prófa við raunverulegar mælingar á IgG mótefnum (sermiprófum) í blóði, sem sýna fram á fyrri sýkingu.
Aðeins einn af sjö sem greindust jákvæðir reyndist sýktur
Niðurstaðan var sláandi. Til að fá feril PCR-prófanna til að passa við raunverulegan fjölda þeirra sem höfðu myndað mótefni, þurfti að nota kvörðunarstuðul upp á aðeins 0,14. Með öðrum orðum: Aðeins einn af hverjum sjö sem fengu jákvætt PCR-próf virðist hafa þróað með sér ónæmissvar sem bendir til raunverulegrar sýkingar.
Þetta þýðir að útbreiðsla raunverulegs ónæmis í samfélaginu var mun meiri en opinberar tölur gáfu til kynna. Rannsóknin áætlar að um fjórðungur (25%) þýsku þjóðarinnar hafi verið kominn með IgG mótefni vegna náttúrulegrar sýkingar strax um áramótin 2020/2021, áður en bólusetningar hófust af alvöru.
RKI taldi aðeins 2,8% hafa mótefni
Þetta stangast alfarið á við opinbera málflutning RKI á þeim tíma, sem hélt því fram að aðeins 2,8% þjóðarinnar væru með mótefni í nóvember 2020. Gögn ALM, sem rannsóknin byggir á, sýndu hins vegar 15% mótefnaútbreiðslu á sama tíma.
Það sem er ef til vill alvarlegasti áfellisdómurinn í rannsókninni er að þessi gögn um mótefnamælingar, sem rannsakendur segja að hafi verið nálægt því að vera lýðfræðilega marktæk fyrir alla þjóðina, voru aðgengileg yfirvöldum. Þau voru í raun pöntuð af RKI. Samt var þessum gögnum ekki haldið á lofti opinberlega. Þvert á móti var opinberri birtingu á IgG gögnum frá ALM hætt skyndilega vorið 2021.
Á meðan var öll stefnumótun þýskra stjórnvalda, þar á meðal útgáfa samkomutakmarkana, miðuð við hið svokallaða „7 daga nýgengi“ (Sieben-Tage-Inzidenz), sem byggði eingöngu á fjölda jákvæðra PCR-prófa. Höfundar rannsóknarinnar kalla þennan mælikvarða „vísindalega marklausan“ þar sem hann er alfarið háður fjölda þeirra prófa sem tekin eru hverju sinni.
„Þetta er ekki hlutlægur mælikvarði á raunveruleikann í faraldrinum,“ skrifa rannsakendur, „heldur miðstýrð tala — sem endurspeglar frekar pólitískan vilja en vísindalegan áreiðanleika“. Þessi mælikvarði var engu að síður lögfestur í þýsku sóttvarnalögin.
Krefjast gagngerrar endurskoðunar á ferlinu
Rannsakendur ljúka grein sinni á þeirri hörðu kröfu að þetta „stofnanalega ferli“ sem leiddi til þess að marklaus mælikvarði var hækkaður upp í lagalegan grundvöll fyrir skerðingu á frelsi borgaranna krefjist gagngerrar endurskoðunar — ekki aðeins til að koma í veg fyrir mistök í framtíðinni, heldur til að endurheimta traust á gagnadrifinni lýðheilsustjórnun.
90% Inaccurate: Bombshell German Study Exposes the PCR Test Fraud That Locked Down the World
A seismic new study out of Germany has just dropped a truth bomb on the entire COVID-19 narrative, and the implications are staggering.
Remember the PCR tests? The ones that decided if… pic.twitter.com/7mdepnzqXq
— Camus (@newstart_2024) November 14, 2025