Vísindaverðlaun kvenna gætu fallið karlmanni í skaut

Það er ekki bara í íþróttum sem karlar gera sig gildandi í kvennaflokki. Og, vinna að sjálfsögðu þar sem styrkur þeirra og þol er meira en kvenna. Líffræðin er þannig.

Nú eru það vísindin sem fá að kenna á karlmönnum sem skilgreina sig sem konur. Nú er þeim, körlunum, veitt leyfi til að sækja um kvennaverðlaun í virtan vísindasjóð, konur settar niður. Hvar er akademíska samfélagið, af hverju þegir það?

Auglýsing

Virt verðlaun sem studd eru af Royal Society gera öllum sem ,,skilgreina sig sem kvenkyns nýdoktora“ kleift að sækja um 25,000 punda styrk.

L’Oréal-Unesco For Women in Science UK og Ireland Young Talent Awards veita styrk upp á 25,000 pund til fimm ,,framúrskarandi vísindakvenna sem eru á byrjunarreit“, ætlaður sem hvatning til að stunda rannsóknir og að efla fulltrúa kvenna í geiranum.

Í ár hefur gagnrýni á þennan styrk komið fram. Ástæðan er að kvengervlar -karlar sem skilgreina sig sem konu- uppfylla inntökuskilyrðin. Það er nóg að skilgreina sig sem kvenskyns nýdoktora til að sækja um.

Ólöglegt samkvæmt dómi

Hins vegar segja kvenréttindasamtök að þetta sé ólöglegt í ljósi dóms hæstaréttar í apríl því samkvæmt jafnréttislögum frá 2010 er skilgreining á karli eða konu líffræðilegt kyn þeirra.

Þetta skilyrði er ekki bara bull, það er ólöglegt. Það sem gerir málið enn verra er að Royal Society – virtasta vísindastofnun Bretlands – styður þetta.

Það er löngu kominn tími til að heimsfrægar stofnanir gefist upp á að rústa eigin orðspori með dyggðaboðandi kynjabulli og vera í takti við lög og efnislegan veruleika.

Heimild: Women’s science award ‘unlawfully accepting trans applicants’

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing