Vonskuveður á Spáni – Snjór, ófærð, flóð og tré rifna upp með rótum á Íslendingaslóðum

Mikið óveður gekkk yfir Spán í gær og olli vandræðum víða um land. Á sumum stöðum snjóaði, annars staðar rigndi mikið og vindur var mjög hvass. Þetta leiddi til þess að umferð stöðvaðist, flóð mynduðust og mikið eignatjón hlaust af.

Snjór og umferðaröngþveiti í Madríd

Í Madríd féll mikill snjór á skömmum tíma. Bílar sátu fastir, vegir lokuðust og almenningssamgöngur riðluðust. Yfirvöld hvöttu fólk til að halda sig heima meðan á óveðrinu stóð.

Auglýsing

Tré féllu við Torrevieja

Á svæðum nærri Torrevieja, þar sem margir Íslendingar búa, var vindur svo hvass að tré rifnuðu upp með rótum. Lausir hlutir fuku og rafmagn fór af á sumum svæðum. Risastórt haglél dundi á sumum svæðum.

Mikil rigning og flóðahætta

Í Andalúsíu, Murcia og í Valensía héraði rigndi mikið. Vatn safnaðist á vegi og hætta skapaðist á flóðum, sérstaklega í þurrum árfarvegum. Sjólag var slæmt og varað var við ferðum við strendur. Óveðrið olli töfum á flugi og sjóferðum, einkum við suður- og austurströndina. Ökumenn eru beðnir um að aka varlega.

Ofuröflugur fellibylur við Portúgal

Á sama tíma sameinuðust tveir fellibyljir á Atlantshafi og urðu að einum mjög öflugum sem heitir Kristín. Hann hefur valdið miklum usla í Portúgal. Spáð var vindi allt að 200 kílómetrum á klukkustund, eða um 55 metrum á sekúndu.

Yfirvöld hvetja fólk til að fylgjast með veðurviðvörunum og sýna aðgát þar til veðrið gengur yfir.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing