Vopnaðir hópar réðust inn í kirkjur í norðurhluta Nígeríu á sunnudagsmorgun og rændu yfir 160 kristnum kirkjugestum þar sem þeir voru við guðsþjónustu.
Árásirnar virðast hafa verið samhæfðar og beindust að tveimur þorpum í afskekktu skóglendi í Kaduna ríki.
Árásir á guðsþjónustur
Samkvæmt frásögnum réðust hóparnir inn í nokkrar kirkjur í Kurmin Wali, lokuðu inngöngum og þvinguðu fólkið út í skóg.
Prestur sem leiðir kristin samtök á svæðinu sagði árásarmenn hafa verið marga og þeir hafi verið þungvopnaðir.
Hann greindi frá því að alls hefðu 172 manns verið numdir á brott en níu þeirra náð að flýja, þannig að 163 væru enn í haldi ræningjanna.
Óvissa um fjölda og aðgerðir yfirvalda
Lögregla í Kaduna ríki hefur staðfest árásirnar en segir enn unnið að því að staðfesta nákvæman fjölda þeirra sem var rænt.
Yfirvöld hafa sent herlið og aðrar öryggissveitir á vettvang til að elta uppi ræningjana og reyna að frelsa gíslana.
Lögreglan bendir á að einangrun svæðisins og slæmar samgöngur geri upplýsingasöfnun erfiða eftir slíkar árásir.
Langvarandi ofsóknir gegn kristnum
Kristnir íbúar í norðurhluta Nígeríu hafa lengi búið við alvarlegar ofsóknir, einkum þar sem öfgasamtök og vopnaðir hópar fá að vaða þar uppi næstum óareittir.
Samkvæmt mannréttindasamtökum hafa tugir þúsunda látið lífið í ofbeldi tengdu íslömskum öfgahópum frá árinu 2011.
Skýrslur mannúðarsamtaka benda einnig á að kristnar konur verði fyrir sérlega alvarlegu ofbeldi, þar á meðal kynferðisofbeldi, nauðungarhjónaböndum og kynlífsánauð.