Yfirlýsing barst fjölmiðlum í dag frá Oddgeiri Einarssyni hæstaréttarlögmanni, verjanda manns sem sakaður er um kynferðisbrot gegn barni í Hafnarfirði síðastliðið haust.
Í yfirlýsingunni segir að skjólstæðingur hans telji ákæruna í miklu ósamræmi við gögn málsins og að hann sé saklaus af þeim brotum sem honum eru gefin að sök.
Segir umfjöllun hafa verið einhliða
Lögmaðurinn bendir á að málið hafi fengið mikla fjölmiðlaumfjöllun löngu áður en dómstólar hófu umfjöllun um það og að í þeirri umfjöllun hafi verið horft fram hjá sjónarmiðum sem bendi til þess að skjólstæðingur hans sé saklaus.
Þá segir að atriði í umfjöllun hafi ekki verið sannleikanum samkvæm.
Treystir dómstólum til að leysa málið
Í yfirlýsingunni kemur fram að málið verði leyst fyrir dómi þar sem öll gögn og sjónarmið beggja aðila verði lögð fram.
Jafnframt er minnt á þá grundvallarreglu réttarríkisins að sakborningur skuli teljast saklaus uns sekt er sönnuð.
Með yfirlýsingu lögmannsins fylgir einnig yfirlýsing frá skjólstæðingi hans sjálfum, sem birt er hér að neðan í heild sinni.
Yfirlýsing Helga Bjarts:
Ég hef lengi velt því fyrir mér hvort ég eigi yfir höfuð að stíga fram með einhver orð í þessu máli. Ég geri það nú af þeirri einföldu ástæðu að þögn mín hefur skapað rými fyrir þá ályktun að ég hafi vísvitandi framið ólýsanlegt brot gegn barni.
Umrætt kvöld féll ég á bindindi mínu og var um nóttina kominn í svokallað blackout-ástand og virðist ekki hafa verið með sjálfum mér enda fannst ég sofandi áfengisdauða í vaskahúsinu heima hjá mér án þess að muna hvernig ég komst þangað.
Þó að ég hafi verið í þessu ástandi þá hef ég það einfaldlega ekki í mér að vera fær um að gera það sem ég er sakaður um og er saklaus af þeirri ákæru. Þá er ákæran sjálf í miklu ósamræmi við gögn málsins að mínu mati. Það breytir þó engu um þá staðreynd að afleiðingarnar eru raunverulegar, alvarlegar og skelfilegar.
Ég vil taka það skýrt fram að ég fordæmi allt kynferðisofbeldi gegn börnum og hef aldrei haft slíkar hvatir eða hugsanir. Það sem ég er sakaður um að hafa gert er mér sjálfum óskiljanlegt og hefur sett líf mitt og fjölskyldu minnar í rúst. Það eina sem ég veit er að í því húsi sem sagt er að ég hafi farið inn í þessa nótt býr kona sem ég taldi á þessum tímapunkti bestu vinkonu mína. Ég skil að orð mín breyta ekki þeirri upplifun og þeim ótta sem barn og fjölskylda þess bera. Ég finn til með barninu og fjölskyldu þess vegna þess ótta og sársauka sem þau upplifa í dag.
Ég mun aldrei geta afturkallað það að hafa fallið á bindindi mínu, en tek aftur fram að ég er ekki sekur um það sem ég er ákærður fyrir.
Ég hef frá fyrsta degi verið í samstarfi við yfirvöld og mun halda því áfram. Ég hef jafnframt leitað sérfræðiaðstoðar og er í meðferð til að tryggja að slíkt bakslag endurtaki sig ekki.
Ég skil að þetta mál vekur sterk viðbrögð. Ég bið þó um að málsmeðferð fái að fara sinn lögbundna farveg og að dómur verði ekki kveðinn upp í fjölmiðlum.
Þetta er martröð sem ég mun bera með mér alla ævi. Það eina sem ég get gert er að axla ábyrgð á falli mínu og sýna iðrun í verki.
Helgi Bjartur Þorvarðarson