Lovísa Thompson, 15 ára skytta Gróttu í handbolta, tryggði liðinu sigur og þar með Íslandsmeistaratitil með mögnuðu marki á lokasekúndunum í fjórða úrslitaleiknum við Stjörnuna í gær.
Grótta hafði yfir í einvígi liðanna, 2-1 fyrir leikinn og gat því með sigri tryggt sér fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í meistaraflokki.
19 sekúndur voru eftir af leiknum og staðan 23-23 þegar Kári Garðarsson þjálfari Gróttu tók leikhlé.



