Leikkonan Heiða Rún Sigurðardóttir, sem kallar sig Heida Reed úti í hinum stóra heimi, (hér á Twitter) hefur gert samning um að leika í sjónvarpsþáttunum Poldark næstu fjögur til fimm árin. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Sjá einnig: Heiða Rún segir kynlífssenurnar hafa tilgang
Þættirnir eru framleiddir af BBC og njóta mikilla vinsælda. Nútíminn greindi frá því fyrr á árinu að sjö milljónir manna fylgdust að jafnaði með fyrstu þáttaröðinni en tökur á annarri þáttaröð hefjast í september.
Þættirnir gerast á 19. öld og fjalla um Ross Poldark, sem leikinn er af Aidan Turner. Hann snýr heim úr stríði og kemst að því að hann hefur verið úrskurðaður látinn og að unnusta hans, sem Heiða Rún leikur, sé trúlofuð frænda hans.
Ástarmálin verða svo flóknari eftir því sem líður á þessa átta þátta seríu sem Bretarnir kunna vel að meta.
Heiða Rún sagði í viðtali við Morgunútgáfuna á RÚV að ótrúlega mikið væri lagt í þættina.
Bretar eru náttúrulega bestir í þessu. Þeir eru með svo miklu meira af söguefni en Bandaríkjamenn. Þess vegna eru þættirnir mjög vinsælir í Bandaríkjunumn. Þar er einmitt verið að sýna þættina og það gengur mjög vel.
Sýningar á fyrstu þáttaröðinni hefjast á RÚV í september.