15 þúsund hlauparar með málvillu um hálsinn: „Þetta er alveg fyndið en mjög pínlegt líka“

Svo virðist sem meinleg málfræðivilla hafi ratað framan á verðlaunapeningana sem veittir eru fyrir þátttöku í Reykjavíkurmaraþoninu í dag. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Á verðlaunapeningnum stendur: „REYKJAVÍKURMARAÞON – 32 ÁRS“ en það á að sjálfsögðu að standa „32 ára“.

Auglýsing

Anna Lilja Sigurðardóttir, upplýsingafulltrúi Íþróttabandalags Reykjavíkur sem heldur utan um hlaupið, segist í viðtali á vef RÚV vona að villan sé ekki á öllum verðlaunapeningunum.

„Ég vona nú eiginlega að þetta hafi bara verið þessi eini peningur, þó mér finnist það mjög ólíklegt. Það er mjög óheppileg villa ef þetta er á öllum peningunum. Þetta er alveg fyndið. En mjög pínlegt líka,“ segir Anna Lilja á vef RÚV.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing