today-is-a-good-day

Internetið tryllist yfir ömmunni sem er alveg eins og Taylor Swift

Mynd sem Reddit-notandinn christmaspencil birti á vefnum á dögunum hefur vakið gríðarlega athygli. Myndin er af ömmu hans afa og ástæðan fyrir stórkostlegri útbreiðslu myndarinnar er sú að amma hans lítur út alveg eins og Taylor Swift.

Búið er að skoða myndina meira en milljón sinnum enda sér fólk ekki betur en að Taylor Swift sé í raun amman og hafi ferðast til okkar tíma í tímavél.

Eða hvað finnst ykkur?

TaylorSwiftTwin

Aðrir benda á að afi hans gæti verið Hugh Hefner en okkur finnst hann líta út eins og Laddi.

Auglýsing

læk

Instagram