Tugmilljóna skattsvik Metrómanns

Veitingamaðurinn Jón Garðar Ögmundsson, kenndur við Metro-borgara, og Ásgerður Guðmundsdóttir hafa verið ákærð af embætti sérstaks saksóknara í annað skipti fyrir skattsvik í gegnum fyrrum móðurfélag skyndibitastaðarins Metro. Talið er að þau hafi skotið undan tugum milljóna. Þetta kemur fram á vef Kjarnans:

Fólkið stóð ekki skil á greiðslu opinberra gjalda sem það hafði haldið aftur af launum starfsmanna sinna á árunum 2011 og 2012. Í ákærunni, sem gefin var út 17. júlí, segir að vangoldin staðgreiðsla opinberra gjalda sé „samtals að fjárhæð kr. 33.861.435 hvað varðar Ásgerði og 34.960.099 hvað varðar Jón Garðar“.

Á vef Kjarnans kemur fram að Jón Garðar hafi áður verið ákærður og sakfelldur fyrir að skila ekki inn opinberum gjöldum:

Í fyrra haust var gefin út önnur ákæru á hendur honum fyrir sömu sakir vegna áranna 2009 og 2010. Alls nam upphæðin sem skilaði sér ekki þá 22,5 milljónum króna. Í því máli var Jón Garðar sakfelldur og dæmdur í fimm mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Honum var auk þess gert að greiða 45 milljónir króna í sekt.

Auglýsing

Smelltu hér til að lesa frétt Kjarnans.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing