39 drengir látnir og tugir afskræmdir eftir misheppnaða umskurðarathöfn

Heilög siðbundin umskurðarathöfn, sem margir Suður-Afríkubúar líta á sem ómissandi manndómsvígslu, hefur leitt til skelfilegra afleiðinga í ár.

39 piltar létust og tugir til viðbótar urðu fyrir varanlegum líkamlegum skaða.

Auglýsing

Athöfnin, sem kallast Ulwaluko, er einkum stunduð af Xhosa-ættbálknum og markar formlega inngöngu drengja í heim fullorðinna karla.

Hún fer fram í einangruðum búðum fjarri byggð, þar sem eldri menn sjá um kennslu og umskurð, oft með frumstæðum og óhreinum verkfærum.

Ríkisstjórnin hafði afskipti

Þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi lýst yfir stefnu um „engin dauðsföll“ fyrir árið 2025, hefur hörmungin enn á ný endurtekið sig.

Meðaltalið undanfarin fimm ár er 72 dauðsföll á ári og samtals hefur því 361 drengur látist frá árinu 2020.

Að sögn yfirvalda stafar stærstur hluti dauðsfalla og limlestinga af ólöglegum og óskráðum umskurðarbúðum sem reknar eru af glæpagengjum.

Þar eru ómenntaðir einstaklingar látnir framkvæma skurðinn og notaðar eru ryðgaðir spjótsoddar eða rakvélarblöð.

Dauðsföll af völdum ofþornunar, sýkinga og barsmíða

Flestir þeirra sem látast deyja úr ofþornun, þar sem þeim er bannað að drekka vatn í marga daga eftir skurðinn til að „forðast þvaglát“.

Aðrir deyja úr sýkingum, sárum eða eru jafnvel drepnir fyrir að reyna að flýja.

Lýst hefur verið tilfellum þar sem drengjum er rænt og foreldrar krafnir um lausnargjald.

Í fyrra þurfti að fjarlægja lim 11 drengja vegna dreps í kjölfar sýkingar, og að sögn heilbrigðisstarfsmanna leita margir drengir sér ekki hjálpar þrátt fyrir mikla verki og rotnandi sár.

Félagslegur þrýstingur og skelfilegar frásagnir

Þrátt fyrir að þátttaka sé formlega valfrjáls, er mikill félagslegur þrýstingur settur á drengi að gangast undir athöfnina.

Þeir sem afþakka eru kallaðir Inkwenkwe, niðrandi orð yfir ófullþroska strák.

Sumir sækja athöfnina af hreinum ótta við félagslega útskúfun.

„Ég var dauðhræddur en vildi verða maður,“ sagði hinn 19 ára gamli Scotty Dawka við fjölmiðil.

„Það var hrikalega sárt en ég lifði það af.“

Á meðan halda sumir í þá skoðun að þessi siður sé ómissandi hluti menningar, krefjast aðrir banns á þessum sið.

Móðir eins drengs sem var numinn á brott segir son sinn hafa verið barinn og pyntaðan í ólöglegum búðum af þessu tagi, áður en hún þurfti að greiða lausnargjald til að fá hann heim.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing