40 metra röð og frábær stemning í Druslugöngupartíi

Röðin í sérstakt pepppartí á Húrra Druslugöngunnar teygði sig yfir á Hafnarstræti fyrr í kvöld. Dj flugvél og geimskip, Vaginaboys, Sturla Atlas og dj Sunna Ben koma fram í partíinu sem stendur ennþá yfir og stemningin er frábær.

Auglýsing

Hægt er að kaupa ýmsan varning, svo sem boli og derhúfur til að styrkja Druslugönguna sem leggur af stað frá Hallgrímskirkju, niður Skólavörðustíg klukkan 14 á laugardaginn.

Sjá einnig: Borgarstjóri, plötusnúður, þingmaður og rappari styðja Druslugönguna

Druslugangan er orðin að föstum punkti í íslensku samfélagi þar sem að samfélagið rís upp gegn kynferðisofbeldi og stendur með þolendum – gegn gerendum.

Druslugangan leggur höfuðáherslu á að færa ábyrgð kynferðisglæpa frá þolendum yfir á gerendur.

„Það er alltof oft þannig að einblínt er á klæðnað, hegðun eða fas þolenda sem afsökun fyrir kynferðisglæpi. Það er ekki til nein afsökun,“ segir í viðburðinum á Facebook.

Fylgstu með undirbúningi Druslugöngunnar á Instagram.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing