Leikarinn Ævar Þór Benediktsson, Ævar vísindamaður, hjólaði út í Viðey í gær á sérútbúnu hjóli. Þetta gerði hann fyrir þátt sinn á RÚV og ferðin tók um einn og hálfan tíma.
„Hugmyndin kom frá Eggerti Gunnarssyni leikstjóra þáttanna og Atli Örvar, smiður við RÚV, bjó hjólið til,“ segir Ævar Þór.
Þetta var afar erfitt, sérstaklega þegar ég loksins komst úr úr höfninni og fór að lenda í alvöru straumum. Bátur frá Eldingu, fullur af tökuliði, fylgdi mér alla leiðina.
Ævar segir að það hafi verið erfiðast að halda jafnvægi.
„Straumarnir vildu auðvitað feykja manni til og frá og um leið og þú varst ekki að hjóla beint áfram var orðið erfitt að halda jafnvæginu,“ segir hann léttur.
„Adrenalínið hélt manni gangandi á leiðarenda, en strax í gærkvöldi voru vöðvarnir farnir að kvarta og í dag er ég með harðsperrur á fáránlegustu stöðum.“