Afganskir menn dæmdir fyrir nauðgun á 15 ára stúlku – Óttuðust uppþot ef almenningur sæi hversu gróft brotið var

Tveir Afganir, Jan Jahanzeb og Israr Niazal, voru mánudaginn dæmdir í fangelsi fyrir að nauðga 15 ára stúlku í Leamington Spa á Englandi.

Mennirnir höfðu báðir komið til Bretlands á síðasta ári sem hælisleitendur.

Auglýsing

Samkvæmt ákæru tóku þeir stúlkuna, sem var mjög drukkin, skildu hanafrá vinum sínum í almenningsgarði í maí og frömdu ódæðið þar.

Stúlkan náði að taka upp árásina

Dómnum var sýnt myndband sem stúlkan náði að taka upp á meðan árásin stóð yfir.

Í því heyrðist hún gráta og hrópa: „Hjálpið mér, látið mig vera, ég vil fara heim.“

Í yfirlýsingu hennar sagði hún að þetta hefði verið fyrsta kynferðislega reynsla hennar og að dagurinn hefði gjörbreytt henni sem manneskju.

Samkvæmt lýsingu var efnið svo ógeðfellt að dómurinn óttaðist að til uppþots kæmi ef upptakan kæmi fyrir sjónir almennings.

Mál af þessu tagi orðið pólitískt hitamál

Kynferðisbrot framin af hælisleitendum hafa á síðustu misserum orðið stórt pólitískt umræðuefni í Bretlandi á sama tíma og stjórnvöld reyna að draga úr komu fólks á bátum yfir Ermarsundið.

Í síðasta mánuði játaði annar afganskur maður að hafa nauðgað 12 ára stúlku í Nuneaton og í september var Eþíópíumaður dæmdur fyrir kynferðisbrot á unglingsstúlku og konu í Epping, norðan Lundúna.

Brotin hafa leitt til umfangsmikilla mótmæla og átaka við gistihús fyrir hælisleitendur víða um landið.

Dómarinn heimilar nafnbirtingu piltanna

Dómarinn Sylvia de Bertodano ákvað að heimila nafnbirtingu piltanna þar sem hún taldi það þjóna almannahagsmunum.

Jahanzeb, sem verður 18 ára í ársbyrjun, hlaut 10 ára og átta mánaða fangelsi. Niazal fékk níu ár og tíu mánuði.

Ferðalag piltanna til Bretlands og möguleg brottvísun

Verjandi Jahanzeb sagði skjólstæðing sinn hafa ferðast einan um Evrópu og reynt fjórum sinnum að komast yfir Ermarsundið áður en honum tókst það í janúar.

Honum verpur vísað úr landi eftir afplánun.

Verjandi Niazal útskýrði að pilturinn hefði flúið til Bretlands í nóvember eftir að Talíbanar myrtu föður hans sem starfaði í afganska hernum.

Hann bíður nú niðurstöðu í hælisumsókn sinni en dómarinn sagðist ætla að mæla með brottvísun hans eftir afplánun.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing