Agnes M. Sigurðardóttir, biskup ætlar ekki að tjá sig um launahækkunina

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, ætlar ekki að tjá sig um úrskurð Kjararáðs sem færir henni 21% launahækkun, úr 1,28 milljónum á mánuði í 1,55 milljónir króna á mánuði, afturvirkt til ársbyrjunar 2017. Vegna hækkunarinnar fær Agnes 3,2 milljóna króna eingreiðslu. Í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni segir að það sé ekki í verkahring biskups að tjá sig um hækkanirnar.

Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að leiðréttingin eigi þó ekki að þurfa að koma á óvart eftir tólf ára kyrrstöðu. Þar segir einnig að mikil vinna hafi verið sett í að gera Kjararáði grein fyrir starfsskyldum presta og biskupa.

Auglýsing

Yfirlýsing Biskupsstofu í heild sinni:
„Í framhaldi af úrskurði Kjararáðs um launakjör í prestastétt vill biskup Íslands að gefnu tilefni árétta að það er ekki í hans verkahring að tjá sig efnislega um niðurstöðuna. Eðlilegt er þó að benda á að um er að ræða kerfisbreytingar og launaleiðréttingar eftir tólf ára kyrrstöðu að undanskilinni kjaraskerðingu hjá prestastéttinni á árinu 2009.

Prestafélag Íslands lagði mikla vinnu í að gera kjararáði grein fyrir starfsumhverfi og starfsskyldum  presta og biskupa. Á meðal þeirra gagna sem lögð voru fram var lýsing á daglegum verkefnum biskups Íslands sem hann vann að beiðni félagsins. Niðurstaða ítarlegrar skoðunar og endurmats kjararáðs á starfskjörum biskupa og presta liggur nú fyrir og þarf ekki að koma á óvart að ástæða hafi þótt til ýmissa breytinga og leiðréttinga. Að öðru leyti mun biskup Íslands ekki tjá sig um niðurstöðurnar né svara fyrirspurnum um persónulega afstöðu sína til þeirra.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing