Ágústa Eva dómari í Ísland Got Talent

Söng- og leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir verður í dómnefnd Ísland Got Talent í vetur. Ágústa er fjórði og síðasti dómarinn sem kynntur er til leiks, en með henni í dómnefnd verða Jakob Frímann Magnússon, Dr. Gunni og Marta María Jónasdóttir. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Sjá einnig: Marta María dómari í Ísland Got Talent, öllum dómurum skipt út

Auglýsing

Ágústa Eva segir í Fréttablaðinu að áskorunin leggist vel í sig.

Ég fæ mikið út úr því að sjá ungt fólk stíga sín fyrstu skref á sviði, finnst það mjög skemmtilegt. Ég hef setið í fjölda dómnefnda á söngvakeppnum og slíku, en þetta er auðvitað á miklu stærri skala. Ég er spennt fyrir að sjá allt hæfileikafólkið sem mun stíga á svið.

Þá segir í Ágústa í Fréttablaðinu að ómögulegt sé að segja til um hvort hún ýti á gullhnappinn, sem kemur keppendum samstundis áfram, í gegnum prufur.

„Það spilast bara eftir því sem kemur til okkar. Ég á fjögurra ára strák og eftir að ég varð mamma fór ég að tárast yfir alls konar hlutum. Ég á það til að verða hrifnæm og það getur verið mikið pönk í mér. Þannig að það er aldrei að vita,“ segir hún.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing