Ágústa kennir konum að heila píkurnar sínar: „Píkan okkar er yndisleg“

Ágústa Kolbrún Roberts, jógakennari og heilari, hefur birt myndband á Youtube þar sem hún kennir konum að heila á sér píkurnar. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Hún útskýrir af hverju konur ættu að heila píkurnar í upphafi myndbandsins segist sjálf hafa heilað píkuna sína verulega mikið.

Það er ekki talað mikið um þetta, sérstaklega ekki á netinu, á Facebook og hvar sem er. Ég var að spjalla við vinkonu mína fyrir nokkrum dögum. Við vorum að spjalla um hina og þessa, sæta stráka. Og ég segi svona: „Það er ógeðslega góð lykt af píkunni“. Hún segir svona: „Hahaha. Varstu að pota í öll göt og þefa?“ Ég segi já, eins og ekkert sé eðlilegra.

Auglýsing

Hún segir að konur sjái píkuna oft í neikvæðu ljósi

„Píkan okkar er yndisleg. Hún fæðir börn, við fáum ótrúlega mikla fullnægingu, við sem þorum að leyfa okkur að fá fullnægingu og yfirleitt er góð lykt af píkunni. Píka ætti að vera eitthvað sem er fallegt.“

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

https://youtu.be/oJqLQx7iKqA

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing