today-is-a-good-day

Áhöfn Wow Air hrekkti Loga Bergmann í flugi: „Hef sjaldan verið tekinn jafn duglega“

Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann fékk að bragða á eigin meðali í flugvél Wow í gær. Logi, sem er mikill hrekkjalómur, var á leiðinni í golfferð til Barcelona þegar áhöfnin í flugin kom til hans skilaboðum um að golfsettið hans hefði orðið eftir í Keflavík. Logi segir frá þessu á Facebook-síðu sinni.

„Ég hef lengi kallað mig sérfræðing í hrekkjum,“ útskýrir Logi. „Hef skrifað heila bók um þá og haldið marga fyrirlestra á vinnustöðum. En ég hef sjaldan verið tekinn jafn duglega og í gær.“

Logi var á leiðinni í golfferð með öllum bestu vinum sínum sem var skipulögð fyrir ári. „Þegar við eigum kannski hálftíma eftir til Barcelona kemur flugfreyja með skilaboð til mín á miða — sem ég get ekki sýnt ykkur af því að ég krumpaði hann í tætlur,“ segir hann.

[Hún] biðst afsökunar (mjög sannfærandi). Golfsettið mitt varð semsagt eftir í Keflavík og ég fæ það þegar ferðin er hálfnuð! Og í því að sjálfsögðu, allar kylfur, boltar og skór. 

Logi segist hafa orðið rosalega fúll. Hann ákvað hins vegar að vera kurteis og segja ekkert. „Ég var samt búinn að finna númerið hjá Skúla Mogensen og tilbúinn með hárblásara, þegar ég kæmi úr vélinni,“ segir hann hreinskilinn.

„En á leiðinni út segir flugfreyjan að flugstjórinn vilji tala við mig. Og þegar ég geng inní klefann til þeirra, segir hann við mig: „Það eru fleiri hrekkjalómar er þú!““

Logi segir að hrekkurinn hafi verið algjörlega glæsilegur. „Náði mér algjörlega og endaði á réttan hátt,“ segir hann.

„Lykilatriði í góðum hrekk, eins og ég hef marg predikað, er að hann endi vel. Ég kunni að meta hann í gær og enn betur í dag , þegar ég er búinn með tvo hringi. Með settinu mínu! Takk. Ég var tekinn.“

Auglýsing

læk

Instagram