Alex og Nóam sigruðu Skrekk:„Hjartað okkar sprakk, við trúðum því alls ekki”

„Hjartað okk­ar sprakk, við átt­um alls ekki von á að atriðið okk­ar myndi kom­ast svona langt,“ segja Alex Páls og Nóam Óli Stef­áns­son sem sigruðu Skrekk í gær.

Þeir fluttu frumsamið lag um það að koma út úr skápnum, en þeir eru báðir hinsegin og hafa gengið í gegnum þá reynslu að koma út úr skápnum.

Mikil gleði var í Hlíðaskóla í morgun þegar sigrinum var fagnað og fluttu þeir lagið ásamt hópi krakka úr skólanum. Mbl var á staðnum og tók stutt viðtal við strákana. Einnig má sjá flutning gærkvöldsins í Borgarleikhúsinu hér.

Auglýsing

læk

Instagram