Breytti áföllum í bernsku í sigra:„Ég hélt alltaf að þetta væri mér að kenna“

Athafnakonan Theodóra Mjöll ákvað að breyta sínum áföllum í sigra.

Hún flutti að heiman frá Eyjafirði til Reykjavíkur aðeins 15 ára gömul og er í dag menntuð sem vöruhönnuður og hárgreiðslukona. Theodóra vill stíga fram og segja frá sinni erfiðu reynslu í von um að hún gefi þannig öðrum konum hugrekki til að skila skömminni og standa með sjálfum sér en hún varð fyrir kynferðislegu ofbeldi sem táningur.

Undanfarin ár hefur hún unnið sigra á hinum ýmsum sviðum. Hún hefur unnið við sjónvarpsþætti, tekið að sér verkefni sem vöruhönnuður og nýverið gaf hún út sína þriðju bók, sem nefnist Hárbókin. Í bókinni er hún með fallegar og auðveldar hárgreiðslulausnir fyrir konur og hefur bókin þegar slegið rækilega í gegn.

Vala Matt fór og heimsótti þessa ungu kjarnakonu og heyrði af hennar áföllum og sigrum.

Auglýsing

læk

Instagram