today-is-a-good-day

„Ekkert í veröldinni sem ég hefði getað gert“

Ólöf Tara Harðardóttir, þjálfari og ein af stjórnarkonum Öfga, fær reglulega hótanir frá nafnlausum aðgöngum, aðstandendum gerenda og líka bara mikið frá svona reiðum ungum strákum að hennar sögn.

„Maður veit stundum ekki hvort þeir átti sig á alvarleikanum sem felst í því að senda svona ógeðsleg skilaboð eða að skilja eftir svona ógeðslegar athugasemdir,“ segir Ólöf, en hún er nýjasti gestur í hlaðvarpinu Eigin konur sem er í umsjón Eddu Falak, aktívista og hlaðvarpsstjórnanda.

Ólöf bendir á að það er ekkert sniðugt við að láta svona hluti út úr sér á netinu. „Þetta er ekkert sniðugt. Þú skilur þetta netspor eftir þig og ert jafnvel síendurtekið að skilja eftir þig netspor sem er uppfullt af kvenhatri. Þetta er ógeðslegt,“ segir hún.

Í þættinum ræpa Ólöf og Edda hvort þær kæri eða tilkynni hótanirnar sem þær fá. Ólöf hlær þegar Edda spyr hana út í þetta og svarar neitandi. „Ég geri það sko, ég kæri eða tilkynni þetta til lögreglu. Sumt eru bara beinar hótanir sem maður íhugar að kæra en allt áreiti og allar svonar hótanir og svona „stalker vibes“ og þannig tilkynni ég,“ segir Edda þá.

Þá segir Edda frá atviki þegar hún þurfti að hringja í lögregluna því hún óttaðist að einhver væri að reyna að komast inn á heimilið hennar. Ástæðan fyrir óttanum er sú að Edda hafði fyrir þetta verið að fá mikið af hræðilegum hótunum.

„Ég lenti í því um daginn að ég var búin að vera að fá ógeðslega mikið af líflátshótunum og það var verið að hóta að nauðga mér og eitthvað svona. Svo gerist það bara að ég er heima hjá mér ein, húsið er á fjórum hæðum og ég er ein í húsinu. Það er allt í einu bara dinglað á fullu, bara dinglað og dinglað og bankað og bankað og bankað og dinglað. Klukkan var svona tíu um kvöld.

Þetta var bara daginn eftir að ég hafði fengið allar þessar líflátshótanir, var búin að koma fram í sjónvarpinu og segja frá þessu.“

Edda brot úr þættinum á Instagram síðu sinni en þar má heyra símtal Eddu við neyðarlínuna.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by EIGIN KONUR (@eiginkonur)

„Ég beið í smá stund en þetta heldur áfram, það er bara bankað og bankað og dinglað og dinglað. Ég hleyp upp og næ í símann, er bara að fela mig á gólfinu, og hringi í lögregluna. Lögreglan svarar og svo byrjar þetta bara aftur, það er verið að banka og dingla, það er einhver að reyna að komast inn,“ segir hún og kveðst hafa næstum því fengið taugaáfall við þetta.

„Þarna hugsaði ég bara að það er ekkert sem ég hefði getað gert. Ég var ein í risastóru húsi, ég gat hvergi falið mig ef þeir hefðu komið inn. Maður hugsar oft „ég er alveg ágætlega sterk, ég er búin að vera í bardagaíþróttum“, maður hugsar að maður geti pakkað þessu liði saman. En þarna var ég lömuð af ótta. Ég lá bara í gólfinu og það var ekkert í veröldinni sem ég hefði getað gert.“

Hægt er að nálgast þáttinn á Patreon-síðu hlaðvarpsins.

Auglýsing

læk

Instagram