„Frelsandi að leika strippara,“ segir Lopez

Jennifer Lopez leikur strippara í nýjustu mynd sinni, Hustlers.

Hún segir að hún hafi þurft að gefa sig alla í þetta og að hlutverkið hafa verið bæði frelsandi og valdeflandi.

Í viðtali við Esmagazine segir Lopez þetta:

„Þetta var algjörlega ný upplifun, að koma fram svona fáklædd fyrir framan alla þessa karlmenn. Þarna voru um 300 aukaleikarar að góla og öskra á meðan ég dansaði fyrir pening“

„Það er eitthvað frelsandi og valdeflandi við þetta, en þú er algjörlega berskjölduð, líkamlega, tilfinningalega og sálarlega“

Hustlers verður frumsýnd 13.september næstkomandi.

 

Auglýsing

læk

Instagram