Hundi bjargað af flæðiskeri

Hundi var bjargað af flæðiskeri í Óslandi núna rétt fyrir hádegið, en það voru liðsmenn Björgunarfélags Hornafjarðar sem komu honum til bjargar. Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu.

„Dýrið sem var kalt og hrætt, en er komið í hlýj­una á lög­reglu­stöðinni á Höfn, þarf sár­lega að finna eig­anda sinn,“ seg­ir í færslu sem lög­regl­an birti á Face­book.

Auglýsing

læk

Instagram