Jón Gnarr vill lest á milli Reykjavíkur og Akureyrar

Grínistinn og fyrrum borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, leggur til að járnbrautateinar verði lagðir á milli Akureyrar og Reykjavíkur til vöru- og fólksflutninga með rafknúinni lest. Þessu greinir hann frá í ítarlegri færslu á Facebook síðu sinni þar sem hann fer yfir hugmyndir sínar. Þetta kemur fram á Kaffið.is.

„Frá Reykjavík í Borgarnes lægju teinarnir að mestu samhliða þjóðveginum. Lestin færi um göngin yfir Hvalfjörð, fræst úr malbikinu fyrir teinum. Göngunum væri lokað fyrir bílaumferð þann stutta tíma sem það tæki lestina að renna í gegnum þau. Það væri ekki oftar en 1-2 sinnum á sólarhring og ekki mikil truflun af því. Það er líka vert að athuga að eftir að lestin byrjar að ganga munu vöruflutningar með flutningabílum nær algjörlega detta niður og umferð minnka. Teinarnir fylgdu svo þjóðveginum, að mestu, fyrir utan nokkra hugsanlega útúrdúra og þar sem hentugara væri að gera lestargöng, alla leið til Blönduóss. Frá Blönduósi færu teinarnir eftir Þverárfjallsvegi til Sauðárkróks. Frá Sauðárkróki lægi leiðin yfir Tröllaskaga og til Dalvíkur og frá Dalvík til Akureyrar,“ skrifar Jón.

Hann bætir því svo við að þegar þessum áfanga væri lokið mætti byrja að skoða áframhaldandi teina frá Akureyri til Egilsstaða sem myndu svo enda í Reykjavík og loka hringnum.

„Ég er hvorki verkfræðingur né sérstaklega kunnugur Tröllaskaganum og viðurkenni fúslega að ég hef aldrei lagt járbrautateina en mér sýnist þetta mjög vel gerlegt. Það er búið að gera, og verið að gera, svipaða hluti í Norður Noregi, Rússlandi og Síberíu,“ skrifar Jón sem telur að framtíð samgangna í landinu geti ekki legið í flugumferð, aðallega af umhverfisástæðum.

„Við eigum vegakerfið og munum halda áfram að nota það en það var aldrei hugsað til þungavöruflutninga og er algjörlega komið að þolmörkum.
Ef við viljum í alvöru tryggja blómlega byggð um allt okkar fallega land þá eru lestarsamgöngur eina vitið og því fyrr sem við byrjum að skoða þetta því betra verður allt fyrir komandi kynslóðir, íbúa og gesti.“

Auglýsing

læk

Instagram