Hráefni:
Sósan:
-
20 gr smjör
-
2 msk hveiti
-
2 msk mjólk
-
1 1/2 dl kjúklingasoð
-
laukduft
-
hvítlauksduft
-
þurrkað timjan
-
Sjávarsalt
Kjúklingur og kartöflur:
-
2 msk ólívuolía
-
2 hvítlauksgeirar rifnir niður
-
2 1/2 dl þurrt hvítvín
-
2 1/2 dl kjúklingasoð
-
1/2 dl dijon sinnep
-
2 tsk sykur
-
3 gulrætur, skornar í þunnar sneiðar
-
500 gr litlar kartöflur, skornar í tvennt
-
2 stilkar ferskt rósmarín
-
2 stilkar ferskt timjan ( og smá extra til skrauts)
Aðferð:
1. Byrjið á að útbúa sósuna: Bræðið smjör í litlum potti á meðalhita. Bætið hveitinu saman við og hrærið vel saman. Hellið mjólkinni saman við og hrærið stanslaust í þessu á meðan. Næst er kjúklingasoði hrært saman við þetta ásamt laukdufti, hvítlauksdufti, timjan og salti. Leyfið þessu að þykkna í um 2-3 mín. Þetta er svo tekið af hitanum og látið kólna í 10 mín.
2. Hitið ofninn í 200 gráður.Hitið olíu á pönnu ( sem má fara inn í ofn ) og steikið kjúklinginn í 3 mín á hvorri hlið. Færið hann næst yfir á disk eða fat.
3. Hellið mestu fitunni af pönnunni og steikið lauk og hvítlauk í um 2 mín. Hellið þá hvítvíni á pönnuna og látið þetta malla í 3 mín. Þá fer sósan á pönnuna ásamt 1 dl af vatni, kjúklingasoði, dijon sinnepi og sykri. Hrærið þessu vel saman. Bætið kartöflum, gulrótum, rósmarín og timjan saman við og blandið þessu vel saman
4. Færið kjúklinginn á pönnuna, setjið lok á og inn í ofninn í 30 mín. Takið þá lokið af og aftur í ofninn í 20 mín. Leyfið þessu að standa í 5 mín og toppið þetta með timjan áður en borið er fram.