Maraþon sólarhringur Landans

Dagur í lífi Landans verður fyrsti þáttur haustsins af sjónvarpsþættinum Landanum í Ríkissjónvarpinu. Þátturinn verður sá þrjúhundraðasti í röðinni og verður með allt öðru sniði en venjulegir þættir. Verður boðið upp á sólarhrings maraþon af Landanum.

Mun dagskráin hefjast strax eftir fréttir sunnudaginn 22. september og lýkur sólarhring síðar eða, eftir fréttir mánudaginn 23. september. Fimm umsjónarmenn verða á flakki um landið í sólarhring, hver í sínum landshluta, hitta fólk og taka viðtöl. Hver umsjónarmaður er með tvær manneskjur með sér svo þetta verða í raun fimm, þriggja manna teymi. Munu áhorfendur einnig skyggnast bakvið tjöldin og fylgjast með öllu þeim uppákomum sem geta fylgt svona útsendingum.

Liðin verða litaskipt til aðgreiningar :

Fjólubláa liðið skipa þeir Gunnar Birgisson, Kristinn Þeyr Magnusson og Grímur Jón Sigurðsson. Þeir hefja leik á Akureyri og enda ef allt gengur að óskum á Egilsstöðum.

Rauða liðið. Sigríður Halldórsdóttir fyrrverandi Landamær ætlar að taka Vestfirðina með stæl ásamt Jóhannesi Jónssyni og Braga Valgeirssyni.

Bláa liðið byrjar að öllum líkindum í Lundarreykjardal í Borgarfirði og ætlunin er að komast til Vestmannaeyja. Það skipa þau Edda Sif Pálsdóttir, Rúnar Ingi Garðarsson og Sturla Holm Skúlason.

Gula liðið fer spennandi leiðir. Þórgunnur Oddsdóttir og Gunnlaugur Starri Gylfason hafa fengið með sér Baltasar Breka sem þekkir vel til á svæðinu sem þau ætla að fara frá Snæfellsnesi til Akureyrar.

Í græna liðinu eru Gísli Einarsson, Magnús Atli Magnússon og Björn Helgason sem ætla að byrja í Dyrhólaey og enda för sína á Seyðisfirði.

Ætla þau að fá innsýn í líf þjóðarinnar eins vítt og djúpt og þau geta á einum sólarhring.

Fyrsti þáttur Landans verður frá 22. til 23. september á RÚV og RÚV 2. Útsendingin hefst á aðalrás RÚV en fer síðan á RUV 2 eftir hefðbundinn Landatíma. Yfir nóttina verða þau á aðalrásinni og fram að kvölddagskrá á mánudeginum. Að auki verður hægt að fylgjast með á RÚV.is allan tímann og á samfélagsmiðlum. Skessuhorn greindi frá.

 

Auglýsing

læk

Instagram