Sundmannakláði í Landmannalaugum

Tilkynnt hefur verið til umhverfisstofnunar að notendur náttúrulaugarinnar í Landmannalaugum hafi fengið útbrot vegna sundmannakláða.

Sundlirfur fuglablóðagða (Schistosomatidae) valda útbrotum þegar farið er í vatn þar sem lirfurnar eru til staðar. Kláðabólur myndast þegar ofnæmiskerfi líkamans hefur tekist að stöðva lirfurnar. Sýni menn ekki ofnæmisviðbrögð hefur lirfunni tekist að komast óáreittri inn í líkamann, en þar drepst hún fljótlega. Blóðögðurnar finnast í andfuglum eins og stokkönd og duggönd sem eiga til að dvelja á svæðinu í Landmannalaugum.

Stofnunin í samstarfi við fagaðila vinnur að því að koma í veg fyrir að sundmannakláði berist áfram í náttúrulaugina í Landmannalaugum. Ekki hefur tekist að koma í veg fyrir það á þessu ári og þurfa því baðgestir að hafa það í huga að enn er möguleiki á að smitast af sundmannakláða.

Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofnunar.

Auglýsing

læk

Instagram