today-is-a-good-day

Vinningshafinn er þriggja barna fjölskyldumaður:,,Af leigumarkaðnum yfir í eigið húsnæði“

Vinningshafinn sem vann rúmar 41,8 skattfrjálsar milljónir í fjórfalda Lottó-pottinum um síðustu helgi hefur nú heimsótt höfuðstöðvar Íslenskrar getspár. Lukkumiðann keypti hann í Lottóappinu, 10 raða sjálfvalsmiða.

Vinningshafinn, þriggja barna fjölskyldumaður á höfuðborgarsvæðinu, sagðist hreinlega hafa skolfið á beinunum þegar hann fór inn í appið um kvöldið og sá þar hvernig appið hefði merkt við fimm réttar tölur í einni röðinni. Tilfinningin hafi verið ólýsanleg en jafnframt gott að vita af vinningsmiðanum á öruggum stað þarna í appinu. Vinningurinn er þeim hjónum mjög kærkominn og sjá þau loksins fram á að komast af leigumarkaðnum yfir í eigið húsnæði, nokkuð sem þau höfðu látið sig dreyma um lengi.

Auglýsing

læk

Instagram